Fær ekki Kjarval en má nota sitt nafn á jörðina Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. febrúar 2016 07:00 Verðandi Davíðsstaðir eru 364 hektara jörð. Mynd/Davíð Þór Sigurðarson.
Breyta má nafni jarðarinnar Hleinargarðs II á Héraði og nefna í höfuðið á nýjum eiganda. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þetta á miðvikudag. „Ég óskaði nú reyndar fyrst eftir því að breyta nafninu í Kjarvalsstaði en því var synjað svo ég sneri mér þá einfaldlega að næsta stórmenni,“ segir Davíð Þór Sigurðarson og hlær. Davíð eignaðist Hleinargarð II í nóvember 2013. Er það sá hluti jarðarinnar sem er óbyggður. Hinn hlutinn mun áfram bera nafnið Hleinargarður en jörð Davíðs nafn hans sjálfs og heita Davíðsstaðir. Þar segist hann hafa hug á að byggja upp skógrækt og ættaróðal fyrir börn sín að erfa í fyllingu tímans. Sex bæjarfulltrúar greiddu því atkvæði en þrír sátu hjá þegar bæjarstjórnin samþykkti nafnbreytinguna. Stefán Bogi Sveinsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, benti á í bókun að málið væri það þriðja sinnar tegundar eftir nýlega lagabreytingu sem gerir það að hlutverki sveitarstjórna að ákveða um nafngiftir á jörðum. Áður hafi einni beiðni verið synjað en önnur samþykkt.Stefán Bogi Sveinsson„Ég mun greiða atkvæði með því að samþykkja fyrirliggjandi beiðni, en legg hins vegar áherslu á að ástæða sé til þess að bæjarstjórn móti sér einhverjar viðmiðunarreglur um hvernig fara á með mál af þessu tagi,“ bókaði Stefán Bogi. „Það er mín skoðun að miða ætti við að samþykkja beiðnir um nafnabreytingu og nýjar nafngiftir nema að eitthvað sérstakt mæli gegn því.“ Stefán Bogi nefnir dæmi um þrjú atriði sem hann telji geta mælt gegn því að samþykkja nafnbreytingu á jörð. Í fyrsta lagi að nafnið sé of líkt eða tengist óeðlilega nafngift annars staðar innan sveitarfélagsins. Í öðru lagi að með breytingunni hverfi gamalt og gróið nafn á viðkomandi jörð. Og að lokum að nafnið „brjóti verulega gegn almennri smekkvísi“, eins og hann orðar það. „Ekkert af framangreindu á við í þessu máli, þótt deila megi um þá aðferð að nefna jörð í höfuðið á eiganda hennar, en slíkt hefur tæplega tíðkast hér á landi um að minnsta kosti nokkur hundruð ára skeið,“ bendir bæjarfulltrúinn á. Davíð Þór segist vonsvikinn að hafa ekki fengið að nefna jörðina Kjarvalsstaði. Það hafi hann viljað gera í virðingarskyni við Jóhannes Kjarval sem málaði mikið þar á svæðinu. Nálægur sé einmitt Kjarvalshvammur, reyndar í landi Ketilsstaða, sem kenndur er við listamanninn er dvaldist þar í litlum kofa. „Þeir staðir á landinu sem tengdir eru nafni Kjarvals hafa beina skírskotun til listamannsins,“ sagði bæjarstjórnin í fyrra þegar hún hafnaði beiðni Davíðs Þórs um Kjarvalsstaðanafnið. „Ég skil eiginlega ekki hvers vegna Kjarvalsstaðir voru ekki samþykktir fyrst bæjarstjórnin leyfir Davíðsstaði,“ segir eigandi Hleinargarðs II – bráðum Davíðsstaða.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira