Vísbendingar um aukin skattaundanskot í byggingariðnaði ingvar haraldsson skrifar 3. febrúar 2016 09:00 Skúli Eggert Þórðarsson ríkisskattstjóri segir tilefni til að skoða hvort rétt sé að hvort hefja eigi 100 prósent endurgreiðslur á virðisaukskatti vegna Allir vinna á ný.
Líkur eru á að skattaundanskot hafi aukist í byggingariðnaði að undanförnu í kjölfar lægri endurgreiðslu virðisaukaskatts. Þetta er mat Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra. Í ársbyrjun 2015 lækkaði endurgreiðsla virðisaukaskatts til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu iðnaðarmanna á húsnæði þeirra úr 100 prósentum í 60 prósent. Endurgreiðslurnar höfðu verið 100 prósent frá árinu 2009 þegar svokölluðu „Allir vinna“ átaki var hrundið af stað. Í kjölfar breytinganna í byrjun ársins hefur beiðnum um endurgreiðslur fækkað um 60 prósent á sama tíma og umsvif í byggingariðnaði hafa aukist. Endurgreiðslubeiðnum vegna síðasta árs geti þó enn fjölgað og einhverjir telji það kannski ekki borga sig að óska eftir endurgreiðslu. Það geti þó ekki útskýrt allan mismuninn að sögn ríkisskattstjóra. Skúli bendir á að með því að gefa vinnuna ekki komi kaupandinn sér hjá því að greiða 40 prósent af virðisaukaskattinum. Þá geti seljandi vinnunnar sloppið við að gefa söluna upp til tekjuskatts. Í hundrað prósent endurgreiðslu sé hins vegar enginn ávinningur fyrir kaupanda að gefa ekki upp virðisaukaskatt. Skúli segir afar erfitt að hafa eftirlit með hvort vinna sem fer fram á heimilum sé gefin upp til skatts. Því sé mikilvægt að hvatinn til undanskota sé ekki fyrir hendi. Skúli veltir upp hvort ekki sé rétt að endurgreiða virðisaukaskattinn að fullu á ný. „Ég er sammála fjármálaráðherra um það sem kom fram á Alþingi á mánudag að það sé ástæða til þess að huga að því að fara með þetta aftur í 100 prósent,“ segir Skúli. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á Alþingi á mánudaginn að mikilvægt væri að haga reglum þannig að ekki væri hvati til þess að stinga undan skatti. Hann nefndi í því samhengi breytingarnar sem hafa orðið á endurgreiðslunum. „Skilaboðin sem við fáum frá kerfinu eru sem sagt þau að það sé minna um að virðisaukaskattsskýrslum sé skilað eftir að við lækkuðum endurgreiðsluna úr 100 prósentum niður í 60 prósent,“ sagði Bjarni. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segist telja að það hafi verið óskynsamlegt að lækka endurgreiðsluhlutfallið því endurgreiðslan með Allir vinna hafi verið til þess fallin að bæta skattskil. Ríkisskattstjóri segir eftirlit með byggingariðnaði og öðrum atvinnugreinum mikið. Engu að síður ætlar embættið að bæta 4 til 5 starfsmönnum við skattaeftirlit til viðbótar við um 30 sem fyrir eru til að sinna þeim verkefnum.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira