Klopp: Ég var nálægt því að klappa fyrir markinu hans Vardy Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2016 08:30
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkenndi í viðtali eftir 2-0 tap sinna manna gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi hann var ekki langt frá því að klappa fyrir stórkostlegu marki Jamie Vardy. Enski framherjinn hefur verið magnaður á leiktíðinni og skoraði í gærkvöldi mörk númer 17 og 18 í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hann er markahæstur í deildinni, þremur mörkum á undan Harry Kane og Romelu Lukaku sem verður í eldlínunni með Everton í kvöld. Klopp var óánægður með frammistöðu sinna manna í heildina í gærkvöldi, en eftir nokkuð jafnan leik kom Vardy toppliði Leicester yfir með hreint mögnuðu marki og því fyrsta sem hann skorar fyrir utan teig á tímabilinu. „Svona hlutir gerast þegar maður er í stuði eins og Vardy og Leicester eru. Auðvitað þarf smá heppni til en þetta var virkilega gott mark. Fyrst og fremst þarf maður að vera nógu hugaður til að reyna þetta,“ sagði Klopp í viðtali við Sky Sports eftir leikinn. „Þetta er fullkomin leiktíð fyrir Leicester og fullkomin fyrir Vardy. Þetta lið verðskuldar hvert stig sem það fær og Vardy verðskuldar hvert einasta mark. Ég var nálægt því að klappa fyrir markinu ef ég á að vera heiðarlegur en mér leið bara of illa á þeirri stundu,“ sagði Jürgen Klopp. Liverpool er eftir leikinn með 34 stig í áttunda sæti deildarinnar, ellefu stigum frá Meistaradeildarsæti. Markið magnaða hjá Vardy má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Íslensk hetja sendi Bergen upp í sjöunda himinn: Ein bestu kaup félagsins Fótbolti „FIFA getur ekki leyst pólitísk vandamál heimsins“ Fótbolti „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Golf Lætur ekki einn slæman leik hafa áhrif á verkefnið Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 102-98 | Meistararnir töpuðu í Vesturbænum Körfubolti „Það var smá stress og drama“ Handbolti „Var í vímu þarna í smá stund af gleði og æsingi“ Körfubolti Komin fimm mánuði á leið en stendur á höndum eins og ekkert sé Sport Dagskráin í dag: Verður Breiðablik loks Íslandsmeistari? Sport Stjörnuleikmaður Liverpool missir af mörgum stórleikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Enginn Foden, Bellingham eða Grealish í enska landsliðshópnum Nýbyrjaður en hans eigin stuðningsmenn sungu: „Þú verður rekinn í fyrramálið“ Stjörnuleikmaður Liverpool missir af mörgum stórleikjum Pirraður yfir marki undir vegg: „Hann leggst bara í einhverja fósturstellingu“ „Í DNA okkar Sunderland-manna að þola þennan mann ekki“ Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Fékk óvart rautt spjald Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Opinberað að Beard tók eigið líf Enskir skoruðu mörkin í Bítlaborginni Chiesa ekki með Liverpool til Tyrklands Opnar sig um djammið: „Hjálpaði mér ekki“ Sjáðu alla dramatíkina í enska: Níu mörk skoruð í uppbótartíma Áhugasamur verði Amorim rekinn Hefur enga trú lengur á Amorim Dramatík í uppbótartímanum Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Slot varpaði sökinni á Frimpong Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Fyrsta stig Úlfanna í hús Tvö sjálfsmörk og tvö frá Haaland í sigri City Amorim svekktur: „Þetta er mjög sárt“ Nuno tekinn við West Ham Palace eina ósigraða liðið eftir dísætan sigur á Liverpool Skoruðu þrjú manni fleiri gegn Chelsea Fernandes klikkaði á víti og United tapaði fyrir Brentford Nuno að taka við West Ham Sjá meira