Króatar tóku bronsið í Póllandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 31. janúar 2016 15:40 Kresimir Kozina fagnar hér einu af mörkum sínum í dag. Vísir/AFP
Króatar nældu í bronsið og tryggðu sér um leið sæti á HM í Frakklandi á næsta ári með 31-24 sigri á Noregi í leiknum upp á bronsverðlaunin á EM í Póllandi en Króatarnir reyndust einfaldlega númeri of stórir fyrir Norðmenn. Norðmenn voru nokkuð óvænt að spila til verðlauna á mótinu en liðið tapaði í framlengingu gegn Þýskalandi á föstudaginn. Sama kvöld tapaði Króatía fyrir Spánverjum í seinni undanúrslitaleiknum. Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur framan af og skiptust liðin á forskotinu fyrstu fjórtán mínútur leiksins en þá settu Króatar einfaldlega í lás. Næstu fimm mörk komu öll frá Króatíu en Norðmenn náðu að minnka muninn niður í eitt mark fyrir lok fyrri hálfleiks 11-15. Norðmenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og fóru að saxa á forskot Króata. Náðu Norðmenn að jafna í stöðunni 17-17 þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en það var ekki sjón að sjá Króatana á þessum tíu mínútna kafla sem Norðmenn unnu 6-2. Næstu mínúturnar skiptust liðin á mörkum en aftur virtist norska liðið einfaldlega bara missa allan kraft og keyrðu Króatarnir yfir Norðmenn síðustu fimmtán mínútur leiksins. Náðu þeir að breyta stöðunni úr 20-19 í 28-21 á næstu tíu mínútum og reyndist tíminn einfaldlega og naumur til þess að Norðmenn gætu gert annað áhlaup á forskot Króatanna. Lauk leiknum með sex marka sigri Króatíu en ásamt því að fara heim með bronsverðlaunin tryggðu Króatar sér sæti á HM í Frakklandi 2017 með sigrinum í dag. Á sama tíma varð ljóst að Norðmenn mæta Slóveníu í undankeppninni fyrir HM í Frakklandi 2017.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Sigurvegari Stokkhólms-maraþonsins látin aðeins þrítug Sport Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira