Syngur í Karlakór Reykjavíkur og gengur á fjöll í frístundum 20. janúar 2016 09:30 Eggert var forstjóri N1 á árunum 2012 til 2015, og starfaði áður hjá HB Granda, fyrst sem markaðsstjóri en sem forstjóri frá árinu 2005 til 2012. Fréttablaðið/Ernir
Eggert Benedikt Guðmundsson er nýr forstjóri ReMake Electric ehf. ReMake er orkustjórnunarkerfi sem gerir fyrirtækjum kleift að skilja og bæta orkunotkun sína. ReMake býður lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að draga úr orkunotkun og auka rekstraröryggi. Þetta hjálpar meðal annars við að draga úr mengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Eggert segist mjög spenntur fyrir nýju starfi. „Mér líst mjög vel á það. Þetta tengist mjög mörgu af því sem ég hef verið að gera áður. Bæði menntun minni sem rafmagnsverkfræðingur og því sem ég hef verið að gera í alþjóðlegri markaðssetningu. Við erum með vörur til raforkumælinga og erum að markaðssetja þær um allan heim. Fyrirtækið er að byrja þá vegferð, að því leyti til er þetta mjög spennandi,“ segir Eggert. Eggert lauk meistaraprófi í rafmagnsverkfræði frá háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi árið 1990 og lauk MBA-prófi frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona árið 1997. Eggert var forstjóri N1 á árunum 2012 til 2015. Áður starfaði hann frá 2004 til 2012 hjá HB Granda, fyrst sem markaðsstjóri en sem forstjóri frá árinu 2005. Kona Eggerts er Jónína Lýðsdóttir, hún er hjúkrunarfræðingur og nemi í meistaranámi í ferðamálafræði. Helsta áhugamál Eggerts er tónlist. „Ég spila á gítar og hef mjög gaman af því og syng í Karlakór Reykjavíkur. Það eru stífar æfingar og taka mikinn tíma sem er vel varið,“ segir Eggert. Hann segir hefðbundin karlakóralög í uppáhaldi, en að öll karlakóramúsík sé skemmtileg. „Því fjölbreyttari sem hún er því betra.“ Auk tónlistarinnar reynir Eggert að stunda golf reglulega og hefur gaman af útivist. „Á sumrin reynir maður að ganga eitthvað á fjöll. Við förum alla vega í eina góða gönguferð á sumrin með góðum hópi, þar sem gítarinn er jafnvel með í för, þannig að það er blanda af göngu- og músíkferð,“ segir Eggert. Eggert segir Hornstrandir og Jökulfirðina í sérstöku uppáhaldi. „Við höfum gengið þar oftast, og gengið þar víða um. Við byrjuðum eiginlega á þessu göngufári út frá Hesteyri sem er nú kannski minn uppáhaldsstaður í þessum göngum. Svo víkkuðum við okkur smám saman út úr Jökulfjörðum og Hornströndum og höfum gengið víða. En Hornstrandirnar standa upp úr,“ segir Eggert.
Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira