Guðjón Valur aftur til Löwen Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. janúar 2016 08:48 Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Löwen. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, gengur í raðir Rhein-Neckar Löwen frá Barcelona í sumar, en frá þessu er greint á handboltavefsíðunni Handball-World í morgun. Þetta verður í annað sinn sem Guðjón Valur spilar með Ljónunum í Mannheim, en hann var einnig á mála hjá liðinu frá 2008-2011. Guðjón Valur hefur spilað með Barcelona undanfarin tvö ár og varð Spánar- og Evrópumeistari með liðinu á síðustu leiktíð. Hann hefur verið orðaður við Löwen undanfarna mánuði. „Löwen-liðið hefur þróast mikið frá því ég spilaði þarna síðast fyrir fjórum árum. Þetta er núna eitt af bestu liðum Evrópu og ég hlakka til að spila með því í öllum keppnum. Ég hlakka mikið til að spila aftur í þýsku deildinni og svo leið fjölskyldu minni vel þarna síðast,“ segir Guðjón Valur um verðandi vistaskiptin. Guðjón Valur kemur til með að leysa Uwe Gensheimer af hólmi en þýski landsliðsmaðurinn heldur til Paris Saint-Germain í Frakklandi í sumar. Stefán Rafn Sigurmannsson er einnig á mála hjá Löwen, en hann sagði við Vísi á dögunum að hann ætlar að skoða sín mál í janúar. Hann sagði þó að meiri líkur væru en minni að hann yrði áfram hjá Löwen. Íslenska vinstri hornaparið gæti því spilað saman hjá Löwen á næstu leiktíð en með liðinu spilar einnig Alexander Petersson. Rhein-Neckar Löwen er í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar með 36, tveimur stigum meira en Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel. Guðjón Valur er sem stendur með íslenska landsliðinu sem lauk undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið með sigri á Þýskalandi í gær. Fyrsti leikur strákanna okkar verður gegn Noregi á föstudaginn.
Handbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira