Hanna Rún og Nikita eru formlega stjörnupar Guðrún Ansnes skrifar 14. janúar 2016 10:00 Hanna Rún hóf nýverið að blogga og leyfir áhugasömum að fylgjast með sínu daglega lífi. Vísir/Stefán "
Aldrei verið eins mikið að gera í danskennslunni hjá okkur hérna heima eins og eftir að við fluttum út,“ segir dansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir, sem dvelur á landinu um þessar mundir, en hún er búsett í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum og dansherra, Nikita Bazev, og litla drengnum þeirra, Vladimir Óla. „Það er eins og allir verði sjúkir í að koma núna, en þetta var ekki svona þegar við bjuggum hérna heima,“ bendir hún á og skellir upp úr. Hún kann þó vel að meta dvölina á klakanum, en hana var farið að lengja eftir snjókomunni í Þýskalandi. Hanna Rún, sem sagði í samtali við Fréttablaðið síðasta vor frá því hvernig hún hafi orðið fyrir barðinu á ævareiðum nettröllum og illri tungu Gróu á Leiti um árabil, segist finna fyrir snarlega breyttu viðhorfi og miklu meiri jákvæðni í sinn garð. „Ég vakna oftar en ekki á morgnana við að í pósthólfinu mínu eru hvatningarbréf frá konum sem ég þekki ekki neitt, og lendi auk þess gjarnan í að vera stoppuð úti á götu af ókunnugum sem ausa yfir mig hrósi,“ segir Hanna Rún, brosir og bætir við að dansheimurinn sé þó enn samur við sig. „Þar er baktalið, og verður alltaf. Ég hlusta hins vegar ekkert á það, þetta er afbrýðisemi og hún kemur ef maður er að gera eitthvað gott.“ Þar hittir Hanna Rún naglann á höfuðið, því að á árinu sem var að líða gekk henni einkar vel og unnu þau Nikita hvert mótið á fætur öðru. „Við ákváðum að þegar við snerum aftur, myndi ég ekki stíga á gólfið öðruvísi en að koma sterkari til leiks, þar sem ég ætlaði ekki að hlusta á fólk segja „hún er ekki jafn góð, hún er náttúrulega orðin mamma“, svo við æfðum rosalega mikið og gerðum einmitt það.“Alsæl með bikara, en parið var býsna sigursælt árið 2015Mynd/AðsendParið stimplaði sig rækilega inn, er það fékk titilinn Stjörnupar fyrst íslenskra dansara í lok ársins, en það er nafnbót sem gefin er þeim sem ná á topp fimmtíu á heimslistanum. „Það var markmið sem við höfðum sett okkur, en áður en ég varð ófrísk vorum við ansi nálægt. Í kjölfar barneignar var ég frá keppni í ár og féllum við því niður í sex hundraðasta og eitthvað sæti.“ Með elju og kappsemi tókst þeim Nikita að ná settu markmiði og geta talað um sig sem raunverulegt stjörnupar. „Þetta er vissulega gaman, en alls eru tvö þúsund og átta hundruð manns á listanum,“ segir hún kímin. Auk þess að brjóta þetta blað í sögu íslenskra dansara, gerðu þau sér lítið fyrir og rökuðu inn öllum þeim titlum sem þau gátu hönd á fest. „Nú tekur við heilt ár af nánast stanslausum ferðalögum, og næsta frí er ekki planað fyrr en í desember á næsta ári,“ segir Hanna, og bendir á að vegna mikils þrýstings hafi hún tekið upp á að byrja að blogga, og hafi fengið feiknagóðar viðtökur. „Ég er alltaf að fá fyrirspurnir um kjólana mína, förðunina og hvað við erum að gera, og það er alltaf svo mikið að gerast hjá okkur sem gaman er fyrir fólk að fylgjast með. Það eru rosalega mörg verkefni framundan, og ég get ekki upplýst um þau öll að svo stöddu,“ skýtur hún að í blálokin.
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Tíu ráð Höllu fyrir börn sín og þín til bjargar framtíðinni Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Einstök hæð í retró stíl við Laufásveg Margar konur sem leita á fæðingarheimilin sjálfar á barnsaldri Vandaði Eurovision ekki kveðjurnar á tónleikum Alfreð og Fríða orðin þriggja barna foreldrar Sjá meira