Ísland er sigurstranglegra liðið Henry Birgir Gunnarsson í Katowice skrifar 15. janúar 2016 06:30
Hinn leikreyndi Erlend Mamelund var yfirvegaður og með báða fætur á jörðinni er Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi norska landsliðsins í gær. „Eftir tíu daga undirbúning er mjög gaman að þetta sé loksins að byrja,“ sagði Mamelund en hann er reyndar ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að mæta Íslandi í fyrsta leik. „Það er ekki gott að byrja mótið gegn Íslandi því það er alltaf erfitt að mæta íslenska liðinu. Það er orðið langt síðan að við unnum Ísland og mitt mat er að Ísland sé sigurstranglegra liðið,“ sagði Mamelund en norskir blaðamenn eru reyndar ekki á sama máli og hann. Þeir búast við norskum sigri þó svo Noregur hafi ekki unnið Ísland í síðustu níu landsleikjum þjóðanna. „Þó svo ég telji íslenska liðið vera sigurstranglegra þá eigum við vel möguleika. Þetta verður jafn leikur og úrslitin munu ráðast á síðustu tíu mínútum leiksins. Það er mjög mikilvægt fyrir bæði lið að fá tvö stig í fyrsta leik og við verðum að spila mjög vel til þess að vinna.“ Norðmaðurinn brosti pínu skömmustulega er blaðamaður ítrekaði að Noregur hefði ekki unnið Ísland í átta ár. Hvað þarf Noregur að gera til að vinna leikinn? „Við verðum að finna leiðir til þess að loka á sóknarleik Íslands. Ég held að hópurinn sem við höfum í dag geti ráðið betur við íslensku sóknina en oft áður. Mamelund spilar með þýska liðinu Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar. Norðmaðurinn veit að Alfreð verður ekki par sáttur ef norska liðið vinnur. „Kannski leyfir hann mér ekki að koma aftur til Kiel ef við vinnum,“ sagði Mamelund og brosti breitt.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti Bjarni Jó kveður Selfoss Íslenski boltinn „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Körfubolti Dagskráin í dag: Skiptiborðið og Blikar í Evrópu Sport Valur vann stigalausu Stjörnuna Handbolti De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Fótbolti Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Fótbolti „Ég myndi frekar vilja vinna svona en að vera yfir allan leikinn“ Sport Fleiri fréttir Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Sjá meira