Foreldrafundir í Melaskóla vegna skólastjóradeilunnar Bjarki Ármannsson skrifar 18. janúar 2016 23:00 Foreldrar barna í Melaskóla funduðu í kvöld með bekkjarfulltrúum allra bekkja um stöðuna sem upp er komin í skólanum. Vísir/Vilhelm
Foreldrar barna í Melaskóla funduðu í kvöld með bekkjarfulltrúum allra bekkja um stöðuna sem upp er komin í skólanum. Markmið fundarins var að kynna fyrir foreldrum ályktun sem bekkjafulltrúarnir hafa samþykkt og gengur út á að ekki verði við það búið að Dagný Annasdóttir skólastjóri komi aftur til starfa þann 1. apríl. Þrjátíu kennarar við skólann hafa skrifað bréf til Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar þar sem fram kemur að ef Dagný muni halda áfram sem skólastjóri, eftir leyfi sem hún er í og líkur þann 31. mars, þá muni þeir segja upp. Um er að ræða ríflega þrjá fjórðu kennara skólans og þá sem eru með hvað lengstan starfsaldur. Málið er sagt flókið og viðkvæmt og ekki hafa fengist upplýsingar um það nákvæmlega um hvað deila Dagnýjar og kennaranna snýst.Sjá einnig: Skólastjóraskipti í Melaskóla eftir verulegar væringar Samkvæmt heimildum Vísis fengu foreldrar ekki að vita mikið meira á fundinum í kvöld en að starfsfólk skólans hafi ítrekað kvartað yfir samskiptaörðugleikum og trúnaðarbresti. Dagný tók við stöðu skólastjóra Melaskóla árið 2013 og fyrstu kvartanir yfir störfum hennar bárust strax á fyrsta ári hennar í starfi. Bekkjarfulltrúar munu áfram funda með foreldrum út vikuna og stendur til að reyna að safna sem flestum undirskriftum foreldra við ályktunina til þess að reyna að þrýsta enn frekar á skóla- og frístundaráð til að leysa úr stöðunni sem fyrst.
Tengdar fréttir Skólastjóraskipti í Melaskóla eftir verulegar væringar Rottugangur var í skólanum í haust og ganga kærur og klögumál á víxl. 1. desember 2015 15:21 Kennarauppreisn í Melaskóla 30 kennarar hóta að hætta ef Dagný Annasdóttir tekur aftur við sem skólastjóri Melaskóla. 18. janúar 2016 13:25 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Skólastjóraskipti í Melaskóla eftir verulegar væringar Rottugangur var í skólanum í haust og ganga kærur og klögumál á víxl. 1. desember 2015 15:21
Kennarauppreisn í Melaskóla 30 kennarar hóta að hætta ef Dagný Annasdóttir tekur aftur við sem skólastjóri Melaskóla. 18. janúar 2016 13:25