Pólland vann meistarana og fer með fullt hús í milliriðilinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. janúar 2016 21:04 Pólverjar skora í leiknum í kvöld. vísir/epa
Gestgjafar Póllands unnu glæsilegan sigur á heims, Evrópu- og Ólympíumeisturum Frakklands, 31-25, í lokaleik A-riðils á Evrópumótinu í handbolta í kvöld. Bæði lið voru komin áfram fyrir leikinn en hann var úrslitaleikur um hvort liðið færi með fjögur stig eða fullt hús í milliriðil eitt. Pólverjar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12, og náðu mest sex marka forskoti í seinni hálfleik, 20-14. Frakkarnir gáfust ekki upp og minnkuðu muninn en Pólverjarnir héldu Evrópumeisturunum alltaf nógu langt frá sér og innbyrtu glæsilegan sigur. Pólska liðið er gífurlega sterkt og með heimavöllinn með sér, en því er af mörgum spekingum spáð Evrópumeistaratitlinum. Stórskyttan Karol Bielecki var markahæst hjá Póllandi með níu mörk en hjá Frökkum skoruðu Kentin Mahe og Luc Abalo fimm mörk hvor. Þar með er ljóst hvaða lið spila í milliriðli eitt, en það eru Pólland (4 stig), Noregur (4 stig), Króatía (2 stig), Frakkland (2 stig), Hvíta-Rússland (0 stig), Makedónía (0 stig).
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira