Foreldrum mjög brugðið eftir að ungir drengir fundu sprautunálar Samúel Karl Ólason skrifar 7. september 2016 21:35
Sex litlir drengir voru fluttir á heilbrigðisstofnun Suðurnesja um helgina eftir að hafa mögulega stungið sig á sprautunálum sem þeir fundu í nýbyggingu nærri leikvelli. Foreldrum drengjanna var mjög brugðið en drengirnir höfðu verið að leik með sprauturnar skömmu áður. Drengirnir eru allir á aldrinum 4-5 ára og voru við leik á þessum leikvelli sem er í botnlangagötu í Innri-Njarðvík. Fyrir aftan leikvöllinn eru þessar nýbyggingar þar sem að drengirnir fóru inn og fundu sprautunálarnar. „Ég sé bara strákinn minn og frænda hans vera leika sér fyrir utan gluggann hjá mér. Svo sé ég að það koma þrír aðrir strákar líka og þeir eru svona að leika sér að skylmast og hélt að allt væri í góðu lagi og svo stuttu seinna og svo stuttu seinna þá sé ég sprautu í glugganum og anddyrinu heima og við förum að skoða þetta og þá sjáum við að hún er með beittri nál og blóði í þannig að við vörum bara strax að kanna málin,“ Heiðrún Gunnarsdóttir, móðir eins drengjanna. Ekki er vitað hvort strákarnir hefðu stungið sig á nálunum en þeir voru hruflaðir eftir að hafa leikið sér með þær. Eðli málsins samkvæmt þá var farið með drengina á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til athugunar. Heiðrún segir að foreldrunum sé mjög brugðið. „Manni dettur ekkert í hug að eitthvað svona hættulegt leynist beint fyrir framan nefið á manni þegar börnin eru úti að leika,” segir Heiðrún. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um málið og segir hún í tilkynningu að byggingin sem drengirnir fóru inn í hefur verið lengi í byggingu og engar framkvæmdir þar í gangi um nokkra hríð. „Sko nágrannar okkar hérna fyrir aftan verða svolítið varir við og einhvern umgang að fólki og þetta er bara svona krakkasegull. Þetta er leikvöllur hérna, og krakkarnir í öllu hverfinu leika hérna við hliðina. Þannig að þetta er bara hættulegt svæði,” segir Heiðrún.Hafið þið eitthvað heyrt í eigendum hússins? „Nei, ekki neitt,” segir Heiðrún.En þið vitið að eitthvað um að það sé verið að vinna í þessu núna? „Já,” segir Heiðrún. Lögreglan tilkynnir atvik af þessu tagi til barnaverndaryfirvalda auk þess sem haft sem samband við húseiganda með ábendingu um úrbætur á húsnæðinu. En ætli verktakar séu á einhvern hátt ábyrgir gangvart atviki sem þessu? „Nei það held ég nú ekki. Það var búið að byrgja fyrir alla glugga og síðan hefur það verið brotið upp og greiður aðgangur fyrir börnin inn,” segir Óskar Halldórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Óskar brýnir fyrir foreldrum að ræða þessu mál við börn sín. „Fyrsta lagi að vera ekki að fara inn í svona byggingar þar sem þau eru hættuleg svæði. Og ef þau finna eitthvað svona torkennilegt og sem þau þekkja ekki að láta það bara í friði og tilkynna til foreldra sinna,” segir Óskar.
Tengdar fréttir Sex drengir á Suðurnesjum stungu sig á sprautunálum Síðastliðinn sunnudag voru sex litlir drengir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að þeir höfðu stungið sig á blóðugum sprautunálum. 7. september 2016 10:21 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira
Sex drengir á Suðurnesjum stungu sig á sprautunálum Síðastliðinn sunnudag voru sex litlir drengir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að þeir höfðu stungið sig á blóðugum sprautunálum. 7. september 2016 10:21