Dæmdur í nálgunarbann vegna gruns um kynferðisbrot gegn þroskaskertri konu Anton Egilsson skrifar 14. september 2016 18:55 Hæstiréttur Íslands. Vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag ákvörðun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum um að karlmaður skyldi sæta nálgunarbanni gagnvart þroskaskertri konu. Grunur leikur á að maðurinn hafa brotið kynferðislega á konunni en brotin eiga að hafa átt sér stað á heimili mannsins á haustmánuðum 2014. Nálgunarbannið er til þriggja mánaða en samkvæmt því er lagt bann við því að maðurinn komi á eða sé við lögheimili konunnar eða heimili föður hennar, nálgist hana á almannafæri á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus eða setji sig í samband við hana með nokkru móti.Káfaði á kynfærum hennarKonan kynntist manninum þegar þau hófu að vinna saman en upp úr því samstarfi fór að myndast vinátta þeirra á milli. Í skýrslu sem faðir konunnar gaf hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum segir að maðurinn hafi boðið konunni heim til sín í nokkur skipti en þar hafi þau oft kúrað saman. Hann segir að dóttir sín hafi greint honum frá því að maðurinn hafi í nokkur skipti káfað á kynfærum hennar, bæði innan klæða og utan. Sagði hann að dóttir hans hafi ekki viljað eða getað greint frá því hvað maðurinn hefði gengið langt. Þá hafi hún einnig greint honum frá því að hann hafi beðið um að fá að sjá kynfæri hennar en það hafi verið óljóst í frásögn hennar hvort hún hafi sýnt honum eitthvað eður ei.30 ára aldursmunurÍ matsgerð sem lögð var fyrir dóminn kemur meðal annars fram að greindarvísitala konunnar sé á stigi vægrar greindarskerðingar, en vegna einhverfueinkenna og skorts á aðlögunarhæfni verði að telja að skerðing hennar sé meiri en niðurstöður greindarprófs gefa til kynna. Einnig taldi matsmaður að konan eigi af þessum sökum erfitt með að setja manninum mörk en gagnvart henni hafi hann yfirburði vegna greindarfars og aldursmunar, en maðurinn er 30 árum eldri.Konan mótfallin nálgunarbanninuHæstiréttur staðfesti ákvörðun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þrátt fyrir þá staðreynd að konan væri mótfallin nálgunarbanninu. Sagði Hæstiréttur konuna standa höllum fæti gagnvart manninum og því væri hætt við að hann myndi brjóta gegn henni ef friðhelgi hennar er ekki vernduð.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira