Örtröð fyrir utan Sporthúsið klukkan sex í morgun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. september 2016 22:19
Töluverður fjöldi fólks var mættur fyrir utan Sporthúsið í Kópavogi strax við opnun klukkan sex í morgun. Starfsmaður hafði þó sofið lítillega yfir sig og þurftu viðstaddir því að bíða í einhverja stund eftir að komast inn í líkamsræktarstöðina. Ingi Páll Sigurðsson, eigandi Sporthússins, segir það miður að starfsmanninum hafi ekki tekist að opna stöðina á réttum tíma, en að vissulega hafi verið um mannleg mistök að ræða sem gerist fyrir besta fólk. Búið sé að ganga úr skugga um að slíkt hendi ekki aftur. „Það eru fleiri komnir með lykla að stöðinni þannig að þetta á ekki að koma fyrir aftur,“ segir Ingi.Ræktarbrjálæði að ganga yfir landann Aðspurður segir Ingi svokallað ræktarbrjálæði að ganga yfir landann. Hundruð manns mæti í ræktina eldsnemma á morgnanna og að allir tímar í Sporthúsinu séu afar vel sóttir. „Það virðist vera vakning hjá landanum. Umræðan er farin að snúast meira um líkamsrækt og ég held að fólk sé meira að átta sig á því að það verði að hugsa almennilega um heilsuna. Ólíklegustu menn eru farnir að til dæmis hjóla og skokka, jafnvel menn sem hafa verið antí-sportistar allt sitt líf,“ segir Ingi. Ingi segir jafnframt að aðsókn hafi verið svo mikil að Sporthúsið hafi þurft að bæta við hóptímum til þess að anna eftirspurn. Hann heldur að vinsældir líkamsræktar séu komnar til að vera. „Ég sé ekkert annað gerast og ég trúi ekki að landið fari eitthvað að bakka út úr þessu, þegar menn sjá hvað þeir hafa gott af því að hreyfa sig og hugsa um heilsuna.“ Á meðfylgjandi myndbandi má sjá örtröðina sem hafði myndast fyrir utan líkamsræktarstöðina í morgun, en að sögn viðstaddra biðu jafnframt fjölmargir í bílum sínum fyrir utan Sporthúsið.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira