Dæmdur til að greiða hundruð þúsunda vegna fermingarveislu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. apríl 2016 20:36 Kakan á myndinni tengist fréttinni ekki einu sinni pínu lítið. vísir/getty
Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til að greiða 101.027 krónur auk dráttarvaxta frá 17. apríl 2015. Frá upphæðinni dregst innborgun, 101.027 krónur, sem innt var af hendi 2. nóvember í fyrra. Skuldin var tilkomin vegna veisluþjónustu sem maðurinn keypti af Veislulist ehf. í tengslum við fermingarveislu sonar hans. Kostnaður við veisluna nam 181.027 krónum og greiddi maðurinn 80.000 krónur fyrir fram. Að sögn mannsins óskaði hann eftir því að eftirstöðvunum yrði skipt upp í tvær greiðslur og settar á greiðslukort hans. Veisluþjónustan kannaðist hins vegar ekki við það og setti reikningin í innheimtu. Þann 31. október síðastliðinn var manninum birt stefna til innheimtu skuldarinnar en áður höfðu honum verið send bréf vegna vanskila. Þann 2. nóvember greiddi hann 101.027 krónur til Veislulistar. Fyrir dómi bar maðurinn því við að hann hefði gefið upp kortanúmer sitt og leyninúmer fyrir eftirstöðvunum. Þá hafi honum ekki verið kunnugt um vanskilin þar sem honum hafi illa borist póstur. Hann taldi stefnanda málsins, Veislulist ehf., hafa samþykkt greiðsluna 2. nóvember sem fullnaðarkvittun og það handsalað og undirritað. Í niðurstöðu dómara málsins kemur fram að ósannað sé að um fullnaðarkvittun hafi verið að ræða. Einnig var ekki fallist á þá málsástæðu hans að honum hafi ekki verið kunnugt um vanskilin. Auk þess að þurfa að greiða eftirstöðvar skuldarinnar var manninum gert að greiða málskostnað, 250.000 krónur.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Fólk megi lesa í ræðuna eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sjá meira