Sigmundur Davíð: Markmið sjónvarpsmannanna var að láta mig líta illa út Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. apríl 2016 21:45 „
Nú hefur verið upplýst í sænskum sjónvarpsþætti að þeir sjónvarpsmenn sem í hlut áttu undirbjuggu skipulega viðtal við mig með það eitt í huga að ég yrði látinn líta sem verst út,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í bréfi til flokksmanna Framsóknar. Bréfið sendi Sigmundur í dag en það má finna í heild sinni inn á vef Eyjunnar. Í því upplýsir hann að hann hafi í hyggju að verja tíma með fjölskyldu sinni næstu daga og vikur. Í kjölfarið ætlar hann að fara um landið og ræða við samflokksfólk sitt. Í bréfinu tekur Sigmundur fram að þrátt fyrir uppleggið í viðtalinu þá er hann fyrstur manna til að viðurkenna að hann „stóð sig illa í umræddu viðtali“. Á sama augnabliki hafi hann áttað sig á því að aðdragandi viðtalsins hafi verið byggður á ósannindum og að tilgangurinn hefði verið „að leiða sig í gildru“. „Ég bið ykkur afsökunar á frammistöðu minni í umræddu viðtali. Engum finnst sú frammistaða sárari en mér sjálfum,“ skrifar hann. Í niðurlagi bréfsins upplýsir formaður Framsóknarflokksins að hann hafi, að loknu fríi, í hyggju að ferðast um landið og ræða stöðuna í samfélaginu við fólk. Mörgu sé enn ólokið og enn sé hægt að halda áfram að nýta tækifæri Íslands. „Ég trúi því að staðreyndir, skynsemi, rök og sannleikurinn sigri að lokum. Þess vegna er ég framsóknarmaður,“ skrifar hann að endingu.
Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Staðfesta hnífstunguárás: Gerandinn handtekinn Fréttir Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Sjá meira