Ágætu kjósendur á landsbyggðinni – framtíð Reykjavíkurflugvallar Snorri Snorrason skrifar 1. september 2016 07:00 Gerið þið ykkur grein fyrir því að það er unnið leynt og ljóst að því að rýra öryggi ykkar hvað varðar þann tíma sem gæti tekið að komast á bráðamóttöku þjóðarsjúkrahússins með því að vega að öryggi og getu Reykjavíkurflugvallar? Að því er virðist er það sérstakt áhugamál meirihlutans í Reykjavík að huga frekar að fjárhag íþróttafélags í borginni en öryggi ykkar, kæru landar. Ég hef skrifað nokkrum þingmönnum um þetta mál, þar er fátt um svör. Reyndar fékk ég vinsamlegt bréf frá formanni Vinstri grænna þar sem hún taldi að landsmenn ættu allir að koma að ákvörðun um framtíð flugvallarins. En þingmaður sem hefur verið í forystu fyrir þann sama flokk í áratugi og sækir fylgi sitt í fjarlægustu byggðir höfuðborgarinnar svarar ekki bréfi. Þingmenn Samfylkingar þegja þunnu hljóði, þar á bæ kenna menn sig við jöfnuð og eitt samfélag fyrir alla! Svo virðist sem formaður samgöngunefndar Alþingis og hans félagar átti sig á þýðingu vallarins fyrir land og lýð. Í hinum stjórnarflokknum hafa borist jákvæð svör frá 2 þingkonum. Síðan ræddi ég málið við annan þingmann í þeim sama flokki, sem segist vera hlynntur Reykjavíkurflugvelli í orði, en ekki kom til greina að styðja tillögu um að koma skipulagi flugvalla undir ríkið vegna þess að hún var ættuð úr herbúðum Framsóknarflokksins. Ég spyr mig fyrir hverja eru þingmenn að vinna, ef ekki fyrir okkur, landsmenn? Einnig hefur heyrst að borgaryfirvöld þjarmi nú að vöggu kennsluflugs í Reykjavík. Nú liggur fyrir skýr vilji þjóðarinnar um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Um 70 þúsund Íslendingar vilja hafa völlinn á sínum stað, „Hjartað í Vatnsmýrinni“. Á hátíðarstundum hafa menn mikla lýðræðisást og vilja færa valdið til kjósenda, en er það ef til vill aðeins fagurgali? Ég skil ekki þetta áhugaleysi þingmanna um öryggi ykkar. Það koma hátt í 600 sjúkraflug til Reykjavíkur árlega, það er fyrir utan þyrluflug. Þetta er mér mikið hjartans mál, sjálfur veiktist ég alvarlega á síðasta ári og naut þeirra forréttinda að búa í nálægð við þjóðarsjúkrahúsið.Ekki skilningur á þýðingu flugvalla Ég er kominn af miklu flugfólki sem þekkti landið betur en flestir aðrir og vissi hvernig skjótur breytileiki veðurs gat haft mikil og afdrifarík áhrif á möguleika til þess að lenda heilu og höldnu. Í þá daga var talið fráleitt að byggja flugvöll í Hvassahrauni. Ég tel að því miður hafi allt of margir kjörnir fulltrúar í okkar samfélagi ekki skilning á þýðingu flugvalla og því öryggi sem þeir veita fyrir litla eyþjóð, sem býr við viðvarandi náttúruhamfarir. Nú er ferðaþjónustan orðin stærsta atvinnugrein þjóðarinnar og milljörðum hefur verið varið og verður varið til uppbyggingar um landið og þá dettur mönnum í hug að loka Reykjavíkurflugvelli. Gera menn sér grein fyrir því að það lenda á einum sólarhring í Keflavík um 100 farþegaflugvélar þegar þetta er skrifað? Í áætlunarflugi er gerð áætlun á næsta varaflugvöll. Það er ekki hægt annað en að kalla þetta „stóriðju“ sem á sér stað á Keflavíkurflugvelli í dag, nei þá vilja menn skerða og rýra öryggi varaflugvalla fyrir Keflavík. Nú lítur út fyrir að svokallaðri neyðarbraut í Reykjavík verði lokað vegna skilningsleysis borgaryfirvalda. Fróðlegt verður að sjá hvort þingheimur muni bregðast við dómi Hæstaréttar. Undirritaður horfir á þetta mál eingöngu út frá réttlætis- og sanngirnisjónarmiðum gagnvart öllum þegnum þessa lands. Ágætu kjósendur utan höfuðborgarsvæðisins, nú fara kosningar í hönd, krefjið frambjóðendur um skýr svör, hvort þeir ætli að standa vörð um öryggi ykkar eða hvort þið verðið flokkuð sem 2. flokks þegnar, þið eruð vinnuveitendur verðandi þingmanna!Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar