Yngri börn en áður á leikskólum í Hafnarfirði Birta Svavarsdóttir skrifar 1. september 2016 15:08 109 börn hefja aðlögun á leikskóla í Hafnarfirði nú í haust.
109 börn fædd í upphafi árs 2015 eru komin með pláss á leikskólum í Hafnarfirði og stendur aðlögun nú yfir. Aðgerðir sem miða að lækkun innritunaraldurs eru farnar að skila árangri og eru ný börn á leikskólum Hafnarfjarðar haustið 2016 yngri en áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ í dag. Innritun leikskólabarna á sér stað tvisvar sinnum á ári í Hafnarfirði, í ágúst og í febrúar. Innritun barna að hausti er iðulega umfangsmikil, en þá hefja elstu deildir leikskólanna nám í grunnskóla og stórir hópar barna hefja leikskólagöngu sína. 109 börn af 371 barni sem fædd eru árið 2015 eru nú komin með pláss á leikskóla í Hafnarfirði, en öll þessi börn eru fædd í upphafi árs 2015. „Í febrúar 2017 munu svo börn fædd í apríl og maí 2015 hefja sína leikskólagöngu eftir því sem pláss leyfir. Haustið 2017 komast svo öll önnur börn fædd árið 2015 inn á leikskóla. Þessar aðgerðir eru í takt við ákvörðun fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar frá 1. júní 2015 sem samþykkt var hjá bæjarráði, í umboði bæjarstjórnar, þann 13. ágúst sama ár. Þar kemur fram að stefnt sé að því að börn allt að 18 mánaða aldri innritist í leikskóla. Í einhverjum tilfellum eru börnin þó eldri þar sem innritun á sér stað einungis tvisvar sinnum yfir árið. Það er gert til að halda megi úti markvissu og góðu skólastarfi, þar sem börnin eru höfð í fyrirrúmi, í stað þess að fasi aðlögunar og innritunar sé að eiga sér stað oftar yfir árið með tilheyrandi áhrifum á skipulagt skólastarf. Til stendur að lækka innritunaraldur um einn mánuð ár hvert við innritun í ágúst. Hér er verið að stíga mikilvæg skref í átt að enn betri þjónustu við barnafjölskyldur í Hafnarfirði.“
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira