Sátt virðist ríkja um reglugerð sem lækka á byggingarkostnað Sæunn Gísladóttir skrifar 6. maí 2016 07:00 Markmiðið með breytingunni á byggingarreglugerð er að lækka byggingarkostnað. vísir/gva
Almennt virðist ríkja sátt um breytingar á byggingarreglugerð. Viðskiptaráð Íslands og Samtök Iðnaðarins fagna breytingunni. Formaður Öryrkjubandalagsins telur niðurstöðuna eins ásættanlega og hægt var í ljósi þeirra aðgerða sem var áhugi fyrir að fara í. Samtök iðnaðarins (SI) hefðu hins vegar viljað stíga skrefinu lengra. Í reglugerðinni eru tilslakanir í rýmiskröfum einunigs látnar ná til íbúða sem eru allt að 55 fermetrar að stærð en hefði SI viljað láta þær ná til íbúða allt að nítíu fermetra að stærð. Á þriðjudaginn var reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð undirrituð. Markmiðið er að lækka byggingarkostnað vegna íbúðarhúsnæðis.Björn Brynjúlfur BjörnssonGert er ráð fyrir að reglugerðin taki gildi við birtingu að undanskildum breytingum er varða minniháttar framkvæmdir sem eru tilkynningarskyldar, en þær taka gildi 15. júní. Auk breytinganna er hafinn undirbúningur í ráðuneytinu að gerð frumvarps til laga um breytingu á lögum um mannvirki og skipulagslögum, þar sem áhersla verður lögð á einföldun stjórnsýslu byggingarmála með lækkun byggingarkostnaðar vegna íbúðarhúsnæðis að leiðarljósi. „Við fögnum þessu og finnst ánægjulegt að sjá að stjórnvöld séu að láta til sín taka þegar kemur að því að gera sem flestum kleift að eignast húsnæði," segir Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs. „Reglugerðin gerði byggingu smærri íbúða afar óhagkvæma, til dæmis með nákvæmum formkröfum um lágmarksstærðir rýma.Ellen Calmon, formaður ÖBÍ„Við gagnrýndum hvað reglugerðin var ósveigjanleg, þá nefndum við auk lágmarksstærða rýma til dæmis kröfur um breiddir á göngum, og stigum og það að hafa handriði beggja vegna stiga og ítarlegar kröfur varðandi bæði sorpgeymslur og byggingaleyfi fyrir minniháttar framkvæmdir, svo eitthvað sé nefnt," segir Björn. „Öll þessi atriði er verið að lagfæra." Viðskiptaráð telur að með breytingunni séu stór skref stigin í átt til lækkunar fasteignaverðs. „Samtök Iðnaðarins mátu það sem svo að byggingareglugerðin árið 2012 hefði aukið kostnað smærri íbúða um tíu til tuttugu prósent. Hérna er verið að stíga veruleg skref til að mætt þeirri gagnrýni sem komið hefur fram og því má ætla að þessi hækkun muni að einhverjum hluta ganga til baka," segir Björn. „Okkur finnst ekki í lagi að sé dregið úr kröfum varðandi aðgengi en þetta var eins ásættanlegt og hægt var í ljósi þess sem var áhugi fyrir að fara í," segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands. „Þessi byggingarreglugerð heldur af okkar hálfu, en hún er ekki að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk og það er ekki hægt að segja að hún sé stærra skref í átt að því að allar byggingar á Íslandi séu byggðar samkvæmt algildri hönnun," segir Ellen. Ellen segir að Öryrkjubandalagið hafi reynt að fá aðkomu að nefndinni sem var að endurskoða byggingarreglugerð. „En við fengum enga aðkomu þrátt fyrir ítrekaðar óskir. Við erum ekki ósátt við þessa niðurstöðu sem var komist að, en það hefur farið heilmikill tími í að verja aðgengi. Það er það sem við viljum breyta. Að við þurfum ekki að verja aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða, en að stjórnvöld sjái hag sinn í að taka skrefið í átt að algildri hönnun til fulls," segir Ellen Calmon.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira