Andlát: Valdimar K. Jónsson Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. maí 2016 10:53 Valdimar K. Jónsson.
Valdimar K. Jónsson, vélaverkfræðingur og fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands lést þann 5. maí á hjartadeild Landspítalans. Valdimar var fæddur í Hnífsdal þann 20. ágúst 1934, sonur hjónanna Jóns Kristjánssonar trésmíðameistari og Þorbjargar Valdimarsdóttur húsmóðir. Valdimar útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 1954. Lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1957. Prófi í vélaverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole 1960 og Ph. D frá University of Minnesota 1965. Hann hóf starfsferil sinn hjá Regnecentralen í Kaupmannahöfn og hjá Raforkumálaskrifstofunni í Reykjavík 1960 en sama ár varð hann aðstoðarkennari og rannsóknarmaður hjá University of Minnesota og gegndi þeim störfum til ársins 1965. Árið 1965 gegndi hann stöðu lektors við Imperial College of Science and Technology í London. Árið 1969 varð hann prófessor við Pennsylvania State University í Bandaríkjunum til ársins 1972 þegar hann tók við starfi prófessors við Verkfræði- og raunvísindadeild, Háskóla Íslands sem hann gegndi þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 2004. Valdimar var formaður Bandalags háskólamanna 1978 til 1982 og einnig formaður Veitustofnana Reykjavíkurborgar sömu ár. Valdimar var forseti verkfræðideildar HÍ og í Háskólaráði 1985 til 1989. Hann sinnti ýmsum trúnaðarstöfum fyrir Framsóknarflokkinn m.a. sem varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1978 til 1982. Valdimar kom að stofnun Reykjavíkurlistans 1994 og af mörgum verið kallaður guðfaðir hans. Valdimar hafði umsjón með kælingu hraunsins í Heimaey árið 1973 sem m.a. varð til þess að bjarga innsiglingunni í höfnina í Vestmannaeyjum. Hann sinnti ýmsum ráðgjafaverkefnum í orkugeiranum og á fleiri sviðum m.a. við undirbúning virkjananna á Nesjavöllum og Hellisheiði. Valdimar kom að stofnun Endurmenntunar Háskóla Íslands 1983 og var einnig formaður byggingarnefndar Félagsstofnunar stúdenta um nýja hjónagarða 1986 til 1990 og síðar meir formaður byggingarnefndar nýja stúdentahverfisins við Eggertsgötu frá 1991. Á eftirlaunaárum sínum tók Valdimar þátt í ýmsum nýsköpunarverkefnum. Valdimar var kjörinn heiðursdoktor frá Háskólanum í Lundi Svíþjóð árið 1998 og sæmdur riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2002. Valdimar var giftur Guðrúnu Sigmundsdóttur, sem lést fyrir fjórum árum. Þau eignuðust fjögur börn; Þyrí matvælafræðing, Örn viðskiptafræðing, Vilborg Erlu lyfjatækni og Jón Rafn fasteignasala. Barnabörnin eru 12 og barnabarnabörn 16.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira