Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna ofbeldis í garð sambýliskonu Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2016 17:06 Vísir/GETTY
Hæstiréttur hefur vísað frá gæsluvarðhaldsmáli þar sem kærufresturinn var runninn út þegar kæran barst. Maður sem situr í gæsluvarðhaldi þar sem hann er sakaður um frelsissviptingu, líkamsárás, hótanir, kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar gegn sambýliskonu sinni. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 27. apríl segir að hann hafi haldið konunni á heimili þeirra í fjóra tíma þann 5. febrúar. Farið er nánar yfir ásakanirnar í úrskurði Hæstaréttar. „Á meðan á frelsissviptingunni hafi staðið hafi ákærði veist að A og slegið hana ítrekað hnefahöggum í síðuna og höfuðið, rifið í hár hennar, tekið hana hálstaki og sparkað ítrekað í síðu hennar og fætur þar sem hún hafi legið á gólfinu. Ákærði hafi jafnframt skipað A að setjast í stól og sparkað stólnum svo undan henni svo hún hafi fallið í gólfið.“ Á meðan á þessu stóð er maðurinn sagður hafa ítrekað henni lífláti og komið í veg fyrir að hún kæmist út. Einu sinni reyndi hún að flýja en þá reif hann í hár konunnar og sló hana hnefahöggum. Þá neyddi hann konuna til að girða niður um sig og skoðaði hann kynfæri hennar og rass með vasaljósi. Auk þess tók hann mynd af kynfærum hennar og þvingaði hana til munnmaka og endaþarmsmaka. Brotin sem maðurinn er ákærður fyrir geta varðað allt að 16 ára fangelsi. Fyrir héraðsdómi var farið fram á að með „hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans sé til meðferðar hjá dómstólum.“ Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti það og var hann dæmdur í gæsluvarðhald til 25. maí. Í kærunni til Hæstaréttar var þess krafist að úrskurðurinn yrði feldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldið yrði markað við „hinn skemmsta“ tíma. Verjandi mannsins sendi dómara tölvubréf þann 2. maí þar sem niðurstaða héraðsdóms var kærð. Í niðurstöðu Hæstaréttar. Eins og áður segir var dómur héraðsdóms kveðinn upp þann 27. apríl og samkvæmt lögum er kærufresturinn þrír sólarhringar frá því að aðili fékk vitneskju um úrskurðinn. Málinu var því vísað frá.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira