Endurskoðun er mikilvæg fyrir bændur Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson skrifar 23. september 2016 07:00 Fyrir rúmri viku samþykkti Alþingi lög er varða framkvæmd búvörusamninga. Málið fékk mikla umfjöllun í þinginu á þeim fimm mánuðum sem það var þar til umfjöllunar og tók nokkrum breytingum. Sú viðamesta var án efa ákvæði um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skuli fyrir 18. október næstkomandi skipa formlegan samráðshóp um endurskoðun búvörusamninganna þar sem aðkoma afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda skuli tryggð. Með þessu víðtæka samráði er markmiðið að skapa sátt um framtíðarsýn fyrir íslenskan landbúnað. Lögin gera ráð fyrir að bændur muni greiða atkvæði um endanlegan samning að lokinni endurskoðun og svo þarf Alþingi að fjalla um og samþykkja þær lagabreytingar sem endurskoðaðir eða nýir samningar kalla á. Byggir það á þeirri almennu reglu að til þess að samningur taki gildi þá þurfi hann hljóta samþykki allra samningsaðila. Þetta hefur fengið marga sem tekið hafa þátt í umræðunni um búvörusamningana til að gera því skóna að bændur geti með einhverjum hætti komið í veg fyrir endurskoðun og þannig sé ekki um virka endurskoðun að ræða. Hefur jafnvel verið ýjað að því að það sé hagur bænda að koma í veg fyrir þessa endurskoðun. Ekkert er fjær sanni. Í nýsamþykktum lögum er kveðið á um að allir fjórir samningarnir skuli endurskoðaðir árið 2019. Endurskoðunarákvæði laganna byggir á endurskoðunarákvæðum sem eru til staðar í öllum samningunum fjórum og kveður á um að endurskoðun þeirra skuli fara fram árin 2019 og 2023. Þessa samninga hafa bændur samþykkt í atkvæðagreiðslu. Vilji bænda til endurskoðunar hefur því alltaf legið fyrir. Það er mjög mikilvægt fyrir bændur að endurskoðun samninganna fari fram. Bæði eru ákvæði í samningunum sem eðlilegt er að endurmeta og síðan eru það hreinir og klárir hagsmunir allra málsaðila, ekki síst bænda, að sátt náist um íslenskan landbúnað. Þess vegna fögnuðu Bændasamtök Íslands því víðtæka samráði sem meirihluti atvinnuveganefndar lagði til og ráðist verður í á næstu þremur árum. Bændur munu ganga til þeirrar vinnu með opnum hug og ríkan vilja til sáttar.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Halldór 27.04.2024 Halldór Sögufölsun eytt í kyrrþey Hjörtur Hjartarson Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir skrifar Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir skrifar Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason skrifar Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar