Gróði en ekki græðgi Björgvin Jón Bjarnason skrifar 15. september 2016 14:52 Jón Björnsson og Andrés Magnússon skrifuðu ágæta grein í Fréttablaðið þann 13. september, þar sem þeir fjölluðu um nýsamþykktan búvörusamning. Um þennan samning eru skiptar skoðanir, eins og eðlilegt má telja. Rétt er að staldra við þegar kemur að afkomugreiningu þeirra Jóns og Andrésar, en þeir visa í skoðun á ársreikningum í almennri kjötvinnslu, mjólkurvinnslu og hjá framleiðendum svína- og kjúklingakjöts. Það er rétt hjá þeim félögum að afkoma kjötafurðafyrirtækja hefur mjög markast af taprekstri af sauðfjárslátrun og -vinnslu á síðustu árum. Þá hefur afurðavinnsla úr mjólk ekki reynst mjög arðbær á síðustu árum. Ég hef sjálfur afkomu mína af svínarækt.Afkomutölur af hefðbundnum rekstri svínabúa gefa ekki til kynna að um mjög arðbæra starfsemi hafi verið að ræða á síðustu árum. Einhverjir aðilar í svínarækt reka einnig sláturhús og kjötvinnslur undir sömu kennitölu og má vera að afkoma þeirra félaga gefi aðra mynd, en því fer fjarri að svínabændur reki einhverja fjárplógsstarfsemi. Opinberar tölur gefa til kynna að verð á svínakjöti hérlendis hafi farið hækkandi á liðnum misserum, þótt tekjur okkar svínabænda hafi lækkað. Vegur annarra aðila í virðiskeðjunni virðist því hafa farið vaxandi. Fyrst vikið er að ársreikningum og afkomugreiningum er ekki úr vegi að skoða ársreikninga íslenskra verslunarfyrirtækja. Meðfylgjandi eru lykilstærðir úr ársreikningum Festa og Haga fyrir reikningsárið sem lauk 28. febrúar 2016 hjá báðum aðilum: Þetta eru sannarlega hraustlegar tölur og snöggtum betri en þær sem má finna með skoðun á reikningum erlendra verslunarkeðja. Tesco og Sainsbury‘s náðu þannig 6-11% ávöxtun á eigið fé á síðasta reikningsári. Það er e.t.v. ekki að undra að Costco ákveður að Ísland skuli vera þriðja landið í Evrópu sem þeir opna verslun í. Það er þá heldur ekki að undra að íslenskir fjárfestar hafa lagt sig fram um að gera sig gildandi í að selja landsmönnum mjólk og aðrar neysluvörur, þessi ávöxtun eigin fjár er ekki algeng. Ég get tekið undir með fulltrúum SVÞ að nauðsynlegt er að lagasetning hamli ekki framþróun og ýti undir framleiðniaukningu. Að því leyti er tillaga atvinnuveganefndar Alþingis áhugavert framtak, nauðsynlegt er að raunveruleg stefnumótun liggi að baki jafnvíðtækri samningagerð og gerð búvörusamninga. Skortur á slíkri vinnu er þó engin afsökun fyrir verslun og þjónustu að reka starfsemi sína með allt annarri og betri afkomu en erlendir aðilar í sömu greinum. Þann mun greiðir neytandinn. Þarna virðist spakmælið „gróði en ekki græðgi“ eiga vel við. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Að byggja fyrir fólk eða… Magnús Jónsson Skoðun Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Að byggja fyrir fólk eða… Magnús Jónsson skrifar Skoðun Skynsemi, ábyrgð og fjölskylduvæn framtíð í Fjarðabyggð Baldur Marteinn Einarsson skrifar Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Lesblindir og skóli án aðgreiningar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Þátttakendur – ekki áhorfendur Dagbjört Höskuldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun „En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Popúlískar staðreyndir eða hvað! Einar Gísli Gunnarsson skrifar Skoðun Frelsið til að eiga heimili Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Græna, græna byltingin Ómar H. Kristmundsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn Árni Rúnar Árnason skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Jón Björnsson og Andrés Magnússon skrifuðu ágæta grein í Fréttablaðið þann 13. september, þar sem þeir fjölluðu um nýsamþykktan búvörusamning. Um þennan samning eru skiptar skoðanir, eins og eðlilegt má telja. Rétt er að staldra við þegar kemur að afkomugreiningu þeirra Jóns og Andrésar, en þeir visa í skoðun á ársreikningum í almennri kjötvinnslu, mjólkurvinnslu og hjá framleiðendum svína- og kjúklingakjöts. Það er rétt hjá þeim félögum að afkoma kjötafurðafyrirtækja hefur mjög markast af taprekstri af sauðfjárslátrun og -vinnslu á síðustu árum. Þá hefur afurðavinnsla úr mjólk ekki reynst mjög arðbær á síðustu árum. Ég hef sjálfur afkomu mína af svínarækt.Afkomutölur af hefðbundnum rekstri svínabúa gefa ekki til kynna að um mjög arðbæra starfsemi hafi verið að ræða á síðustu árum. Einhverjir aðilar í svínarækt reka einnig sláturhús og kjötvinnslur undir sömu kennitölu og má vera að afkoma þeirra félaga gefi aðra mynd, en því fer fjarri að svínabændur reki einhverja fjárplógsstarfsemi. Opinberar tölur gefa til kynna að verð á svínakjöti hérlendis hafi farið hækkandi á liðnum misserum, þótt tekjur okkar svínabænda hafi lækkað. Vegur annarra aðila í virðiskeðjunni virðist því hafa farið vaxandi. Fyrst vikið er að ársreikningum og afkomugreiningum er ekki úr vegi að skoða ársreikninga íslenskra verslunarfyrirtækja. Meðfylgjandi eru lykilstærðir úr ársreikningum Festa og Haga fyrir reikningsárið sem lauk 28. febrúar 2016 hjá báðum aðilum: Þetta eru sannarlega hraustlegar tölur og snöggtum betri en þær sem má finna með skoðun á reikningum erlendra verslunarkeðja. Tesco og Sainsbury‘s náðu þannig 6-11% ávöxtun á eigið fé á síðasta reikningsári. Það er e.t.v. ekki að undra að Costco ákveður að Ísland skuli vera þriðja landið í Evrópu sem þeir opna verslun í. Það er þá heldur ekki að undra að íslenskir fjárfestar hafa lagt sig fram um að gera sig gildandi í að selja landsmönnum mjólk og aðrar neysluvörur, þessi ávöxtun eigin fjár er ekki algeng. Ég get tekið undir með fulltrúum SVÞ að nauðsynlegt er að lagasetning hamli ekki framþróun og ýti undir framleiðniaukningu. Að því leyti er tillaga atvinnuveganefndar Alþingis áhugavert framtak, nauðsynlegt er að raunveruleg stefnumótun liggi að baki jafnvíðtækri samningagerð og gerð búvörusamninga. Skortur á slíkri vinnu er þó engin afsökun fyrir verslun og þjónustu að reka starfsemi sína með allt annarri og betri afkomu en erlendir aðilar í sömu greinum. Þann mun greiðir neytandinn. Þarna virðist spakmælið „gróði en ekki græðgi“ eiga vel við.
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun