Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við skattrannsóknarstjóra en hún rannsakar nú þrjátíu mál þar sem grunur er um skattaundanskot á grundvelli leynigagna sem keypt voru á síðasta ári. Einnig verður rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, sem vill leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir þinglok. Hann reiknar með kosningum í október.

Þá fjöllum við um tímabundna stöðvun framkvæmda við Tryggvagötu 12 þar sem fyrirtækið Mannverk reif niður hundrað ára gamalt hús í leyfisleysi. Í fréttatímanum verður einnig fylgst með lykla- og kynslóðaskiptum í versluninni Vínberinu á Laugalegi en Logi Helgason, stofnandi og eigandi Vínbersins, er sestur í helgan stein eftir fjörutíu ára rekstur. Tengdadóttir hans tók við rekstrinum í dag.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 á Stöð 2, Bylgjunni og í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×