Heimtengingar settar á ís eftir banaslys Birgir Olgeirsson skrifar 6. september 2016 16:38 Veitur eru dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Vísir/stefán „
Akkúrat núna, meðan við ákveðum nýtt vinnulag, erum við ekki að tengja neinar heimtaugar,“ segir Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, í samtali við Vísi þegar hún er spurð hvernig fyrirtækið hagi starfsemi sinni eftir að starfsmaður þess lést eftir slys við tengingu heimtaugar í síðustu viku. Veitur eru dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Heimtaugin átti að vera spennulaus en starfsmaður fékk engu að síður straum og fór í hjartastopp. Nærstaddir beittu fyrstu hjálp þangað til sjúkraflutningamenn mættu á vettvang. Þegar starfsmaðurinn hafði verið fluttur á sjúkrahús gekkst hann undir hjartaþræðingu. Hann var því næst fluttur á gjörgæsludeild þar sem hann var úrskurðaður látinn aðfaranótt laugardags. Vinnueftirlitið, Mannvirkjastofnun og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fara með rannsókn slyssins en aðspurð hvort liggi fyrir hvað fór úrskeiðis segir Inga Dóra það vera í höndum rannsóknaraðila að komast að því. Veitur vinna nú að nýju vinnulagi við tengingu heimtauga, sem eru nýjar lagnir inn í nýbyggingar, en það hefur ekki verið virkjað. Á meðan svo er, er ekki unnið við slíkar tengingar sem mun tefja fyrir við framkvæmdir á nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum búin er að teikna upp drög að nýju vinnulagi við tengingu heimtaugar en það hefur ekki verið virkjað,“ segir Inga Dóra. Hún segir að þegar að því komi muni slíkar heimtengingar verða tímafrekari en jafnframt öruggari, sem sé markmiðið með breytingunum.
Tengdar fréttir Starfsmaður Veitna lést eftir vinnuslys Samverustund haldin með starfsfólki Orkuveitu Reykjavíkur í morgun. 5. september 2016 12:11 Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Sjá meira
Starfsmaður Veitna lést eftir vinnuslys Samverustund haldin með starfsfólki Orkuveitu Reykjavíkur í morgun. 5. september 2016 12:11