Drengurinn skelfingu lostinn Nadine Guðrún Yaghi skrifar 6. september 2016 20:00
Níu ára drengur var á gangi eftir göngustíg rétt ofan við Þorlákshöfn í gær þegar ókunnugur maður kom aftan að honum og reyndi draga hann inn í bíl til sín. Drengurinn náði að koma sér undan. Móðir drengsins segir hann vera skelfingu lostinn eftir atburðinn. Maðurinn kom aftan að drengnum á göngustíg og reyndi að draga hann inn í bíl til sín. „Drengurinn minn var að labba til vinkonu sinnar þegar hann verður var við að maður kemur og stekkur að honum og rífur í hann og segist ætla að taka hann með sér til Reykajvíkur í kjallarann sinn,“ segir Sigrún. Drengurinn sem er níu ára gamall, brást hárrétt við og komst undan manninum. „Hann rífur í drenginn en drengurinn minn er svo snöggur og snar að hann gefur honum afturspark í sköflunginn. Hann hljóp svo í burtu. Hann gat lýst manninum vel fyrir lögreglunni eins og barn getur,“ segir Sigrún. Sigrún segir lögregluna hafi rætt við drenginn skömmu eftir atvikið. Hún segir son sinn vera hræddan eftir atburðinn. „Hann er hræddur að eðlisfari. Það getur tekið tíma að vera bara einn og við höfum verið að vinna í því. Hann er mjög skelkaður og hræddur við allt,“ segir Sigrún. Í Facebook-hópnum „Íbúar í Þorlákshöfn“ hefur skapast töluverð umræða um málið en Sigrún setti inn færslu um málið í þvon um að vara við manninum. Í athugasemdum við færsluna kemur fram að um þrjú tilvik sé að ræða sem upp hafa komið síðustu daga. Þá lét Sigrún skóla drengsins vita. „Svo fóru að spinnast upp umræður um að það væru fleiri tilvik sem hefðu komið upp í bænum en lýsingin er ekki eins á öðru málinu og málinu hjá drengnum mínum,“ segir Sigrún. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa embættinu borist 23 tilkynningar um að reynt hafi verið að tæla barn upp í bíl á árinu. Í fyrra bárust embættinu 27 tilkynningar en í meðalári berast hins vegar 40-50 tilkynningar. Árið 2014 voru tilkynningarnar 58 talsins. Áætlað er að fjöldinn verði svipaður í ár en lögreglan segir miklar sveiflur í slíkum tilkynningum. Tilkynningarnar geta verið ólíkar og er ekki alltaf um að ræða tilraun til að nema börn á brott. Sigrún segir að foreldrar verði að ræða vel við börnin sín en umræða um tælingar geri það að verkum að börnin hafi varann á. Hún segir erfitt að vera foreldri í þessari stöðu. Lýsing drengsins á manninum er það eina sem lögreglan hefur eins og staðan er í dag en ekki liggur fyrir lýsing á bílnum. Hann er sagður vera 30 til 40 ára gamall, um 180 cm á hæð. Þybbinn með ljósbrúnt hár. Lögreglan á Suðurlandi hefur málið til rannsóknar en samkvæmt upplýsingum frá embættinu er málið í algjörum forgangi.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Fleiri fréttir Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Sjá meira