Evrópa hafi vanrækt varnir sínar Samúel Karl Ólason skrifar 25. apríl 2016 11:04 Barack Obama í Hannover í morgun. Vísir/EPA
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, kallaði eftir sameinaðri Evrópu gegn popúlisma og efasemdum um Evrópusambandið. Hann sagði Evrópu einnig hafa vanrækt varnir sínar. Obama hélt ræðu í Hannover í Þýskalandi í morgun þar sem hann er í heimsókn. „Sterk og sameinuð Evrópa er heiminum nauðsynleg,“ sagði forsetinn. Hann bar einnig saman hagsæld dagsins í dag miðað við stríð og erfiðleika síðustu aldar. Obama viðurkenndi þó að stofnanir Evrópu geti verið „ergjandi“, en sagði að svarið við vandræðum Evrópu væri ekki að beina spjótunum inn á við.Samkvæmt AFP fréttaveitunni kallaði Obama eftir auknum varnarburðum þeirra þjóða sem eru í NATO. Hann sagði að hver þjóð ætti að greiða sinn hlut, sem eru tvö prósent af vergri þjóðarframleiðslu, til bandalagsins og sameiginlegra varna. Það væri eitthvað sem einhverjir gerðu ekki alltaf. AFP bendir á að Þýskaland hefur margsinnis verið gagnrýnt fyrir að standa ekki við þær skuldbindingar til NATO. Þá nefndi Obama að það væri nauðsynlegt að efla varnir í Póllandi, Rúmeníu og Eystrasaltsríkjunum og jafnvel mæta ógnum við sunnanverða Evrópu.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Sjá meira