Harpa nýr framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2016 13:39 Harpa Jónsdóttir. Vísir
Harpa Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Harpa hefur gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin fimm ár. Áður starfaði Harpa sem forstöðumaður rannsókna og viðbúnaðar hjá Seðlabankanum og við áhættustýringu hjá Sparisjóðabankanum og Glitni. Hagvangur annaðist formlegt ráðningarferli en valnefnd lagði mat á umsækjendur og gerði tillögu um ráðninguna. Í valnefnd sátu Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Friðrik Már Baldursson prófessor í hagfræði í Háskólanum Reykjavík, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Unnur Gunnarsdóttir forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Með hliðsjón af reynslu Hörpu af rannsóknum, stefnumótun og stjórnun og þekkingu á fjármálakerfinu var valnefndin einhuga í þeirri afstöðu sinni að mæla með henni og seðlabankastjóri hefur því ákveðið að ráða Hörpu í starfið segir í tilkynningu frá Seðlabankanum. Þar segir einnig að í störfum sínum hafi Harpa öðlast víðtæka reynslu af rannsóknum og stefnumótunarvinnu. Hún hefur setið sem varamaður í stjórn Fjármálaeftirlitsins frá árinu 2012. Harpa er með BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands, og MS- og Ph.D-gráðu í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet. Hlutverk fjármálastöðugleika er að greina áhættu í fjármálakerfinu og taka þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið. Fjármálastöðugleiki hefur einnig umsjón með starfsemi kerfisáhættunefndar og tekur þátt í víðtæku alþjóðlegu samstarfi varðandi regluverk og eftirlit með fjármálakerfinu.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira