Ásmundur segir leigubílstjóra þarfasta þjóninn og vill loka Skutlarahópnum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. mars 2016 11:20 Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Vísir/Vilhelm „
Eigum við að horfa upp á slíka svarta starfsemi fyrir framan nefið á okkur? Er ekki nóg að við ætlum að fylla hér allar verslanir af brennivíni heldur er boðið upp á heimsendingarþjónustu hér allar helgar heim til fólks, er það ekki orðið of mikið af því góða,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag. Tilefni orða hans var Facebook-síðan Skutlarar þar sem einstaklingar bjóða fólki að keyra það gegn gjaldi. Hann sagði ótækt að slík starfsemi fái að þrífast hér á landi. „Svo lengi sem ég man hafa leigubílstjórar verið þarfasti þjónn þjóðarinnar. Þeir eru góðkunningjar almennings og í mínum huga hluti góðra almenningssamgangna í landinu. Nú er sótt að þeim með ólöglegri svartri starfsemi í landinu,“ sagði Ásmundur. Meðal annars séu umræddir skutlarar að selja áfengi. „Þegar mér var boðið að skoða þessa síðu um daginn þá mátti lesa þar auglýsingu: Er með tólf kalda í bílnum og síðan fylgdi símanúmer og staðsetning á bílnum.“ Hann skoraði því á lögregluna að koma í veg fyrir slíka starsfemi. „Ég skora hér með á lögregluna að gera eitthvað í þessu máli. Ég veit að hún er fáliðuð en þetta er mál sem þarf að taka á.“
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Sjá meira