Viðskipti innlent

Íslandsbanki fær ekki að greiða kaupauka nema með samþykki ríkisins

ingvar haraldsson skrifar
Birna Einarsdóttir fékk 44 milljónir króna í árslaun auk 7,2 milljón króna kaupauka.
Birna Einarsdóttir fékk 44 milljónir króna í árslaun auk 7,2 milljón króna kaupauka. Vísir
Stjórn Íslandsbanka má ekki heimila samninga um árangurstengdar greiðslur til starfsmanna bankans eftir næstu áramót nema að fengnu samþykki ríkisins samkvæmt tillögu sem samþykkt var á aðalfundi bankans í gær. DV greindi fyrst frá málinu.

Tillagan er svohljóðandi: „Stjórn bankans skal ekki gera eða heimila samninga um árangurstengdar greiðslur sem gilda um rekstur bankans eftir 31.12.2016, nema að fengnu samþykki hluthafa bankans og þá á þeim skilmálum sem hluthafar samþykkja á hluthafafundi.“

Íslandsbanki komst að fullu í eigu ríkisins í byrjun árs þegar slitabú Glitnis afhenti 95 prósent hlut í bankanum sem hluta af stöðugleikaframlagi slitabúsins. Bankasýsla ríkisins heldur utan um eignarhlut ríkisins í bankanum.

Kaupaukasamningar sem nú þegar eru í gildi kveða á um að útborgun á 40% af áunnum greiðslum er frestað um þrjú ár, greiðslurnar nema ekki hærra en fjórðungi af árslaunum og heildarupphæð árangurstengdra greiðsla má ekki vera umfram 4% af heildarlaunum bankans.

Íslandsbanki skuldbatt sig á síðasta ári til að greiða 378 milljónir króna til starfsmanna Íslandsbanka. Þar af var Birnu Einarsdóttur, greiddar 7,2 milljónir króna ofan á 44 milljón króna árslaun.

Fimm nýir í stjórn

Á aðalfundinum var jafnframt kjörnir fimm nýir stjórnarmenn. Friðrik Sophusson, verður áfram formaður stjórnarinnar og Helga Valfells, verður einnig áfram í stjórninni. Nýju stjórnarmennirnir eru  Anna Þórðardóttir, Auður Finnbogadóttir, Árni Stefánsson, Hallgrímur Snorrason og Heiðrún Jónsdóttir. Þá taka Pálmi Kristinsson og Herdís Gunnarsdóttir sæti í varastjórn bankans. 

Þá var einnig samþykkt tillaga um að greiða allt að helmingi hagnaðar í arð eða sem nemur ríflega tíu milljörðum króna. Einnig er heimild til að boða til hluthafafundar síðar á árinu til að greiða út arð vegna hagnaðar fyrir ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×