Íslandsbanki fær ekki að greiða kaupauka nema með samþykki ríkisins ingvar haraldsson skrifar 20. apríl 2016 09:39 Birna Einarsdóttir fékk 44 milljónir króna í árslaun auk 7,2 milljón króna kaupauka. Vísir
Stjórn Íslandsbanka má ekki heimila samninga um árangurstengdar greiðslur til starfsmanna bankans eftir næstu áramót nema að fengnu samþykki ríkisins samkvæmt tillögu sem samþykkt var á aðalfundi bankans í gær. DV greindi fyrst frá málinu. Tillagan er svohljóðandi: „Stjórn bankans skal ekki gera eða heimila samninga um árangurstengdar greiðslur sem gilda um rekstur bankans eftir 31.12.2016, nema að fengnu samþykki hluthafa bankans og þá á þeim skilmálum sem hluthafar samþykkja á hluthafafundi.“ Íslandsbanki komst að fullu í eigu ríkisins í byrjun árs þegar slitabú Glitnis afhenti 95 prósent hlut í bankanum sem hluta af stöðugleikaframlagi slitabúsins. Bankasýsla ríkisins heldur utan um eignarhlut ríkisins í bankanum. Kaupaukasamningar sem nú þegar eru í gildi kveða á um að útborgun á 40% af áunnum greiðslum er frestað um þrjú ár, greiðslurnar nema ekki hærra en fjórðungi af árslaunum og heildarupphæð árangurstengdra greiðsla má ekki vera umfram 4% af heildarlaunum bankans. Íslandsbanki skuldbatt sig á síðasta ári til að greiða 378 milljónir króna til starfsmanna Íslandsbanka. Þar af var Birnu Einarsdóttur, greiddar 7,2 milljónir króna ofan á 44 milljón króna árslaun.Fimm nýir í stjórn Á aðalfundinum var jafnframt kjörnir fimm nýir stjórnarmenn. Friðrik Sophusson, verður áfram formaður stjórnarinnar og Helga Valfells, verður einnig áfram í stjórninni. Nýju stjórnarmennirnir eru Anna Þórðardóttir, Auður Finnbogadóttir, Árni Stefánsson, Hallgrímur Snorrason og Heiðrún Jónsdóttir. Þá taka Pálmi Kristinsson og Herdís Gunnarsdóttir sæti í varastjórn bankans. Þá var einnig samþykkt tillaga um að greiða allt að helmingi hagnaðar í arð eða sem nemur ríflega tíu milljörðum króna. Einnig er heimild til að boða til hluthafafundar síðar á árinu til að greiða út arð vegna hagnaðar fyrir ára.
Mest lesið Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira