Keyptu allt hlutafé ISS Ísland Samúel Karl Ólason skrifar 5. desember 2016 08:50 Guðmundur Guðmundsson, Forstjóri ISS Ísland. Vísir/GVA
Hópur innlendra og erlendra fjárfesta ásamt stjórnendum ISS Ísland ehf hafa undirritað samning um að kaupa allt hlutafé ISS Ísland ehf. Samkvæmt tilkynningu er samningurinn háður fyrirvörum, en eru bæði kaupendur og seljandinn ISS World Services A/S, bjartsýnir á að eigendaskiptin gangi að fullu í gegn fyrir árslok. Kaupverðið er trúnaðarmál. Í tilkynningunni kemur fram að fjárfestahópurinn samanstandi af erlendum aðilum með mikla reynslu af rekstri og stjórnun þjónustufyrirtækja á heimsvísu, innlendum fjárfestum og núverandi stjórnendum ISS á Ísland. „Meðal fjárfestanna er Patrick de Muynck, fyrrum stjórnandi hjá franska veitingafélaginu Elior Group og sænska sjóðastýringarfélagsins EQT sem m.a. átti ISS og SSP Group um árabil. Elior, SSP og ISS eru meðal stærstu fyrirtækja heims á sviði fasteigna- og veitingaþjónustu. Á meðal fjárfestanna eru að auki Peter Nilsson, fyrrum forstjóri Duni og Sanitec, Einar Sveinsson og Benedikt Sveinsson.“ISS hóf starfsemi hér á landi árið 2000 þegar fyrirtækið keypti ræstingadeild Securitas. „Á síðastliðnum 16 árum hefur fyrirtækið vaxið og aukið þjónustuframboð sitt verulega. Þjónusta fyrirtækisins felst í ræstingum, veitingaþjónustu, annarri fasteignaumsýslu og samhæfðum þjónustulausnum. Fyrirtækið mun starfa áfram undir merkjum ISS næstu tvö árin á grundvelli samstarfssamning við ISS World Services A/S.“ „Félagið byggir á sterkum grunni eftir að hafa verið hluti af samstæðu leiðandi aðila á heimsvísu á sviði fasteignaumsjónar. Við munum byggja á þessum grunni og nýta okkar þekkingu og reynslu til fulls til að efla fyrirtækið enn frekar og styðja stjórnendur og starfsfólk í að veita viðskiptavinum okkar áfram framúrskarandi þjónustu,“ segir Patrick de Muynck, verðandi stjórnarformaður ISS Ísland. „Við teljum ISS Ísland mjög áhugaverðan fjárfestingarkost og aðstæður á Íslandi eru um margt spennandi fyrir erlenda aðila með fjárfestingar í huga.“ Guðmundur Guðmundsson, Forstjóri ISS Ísland, slær á svipaða strengi. „ISS Ísland hefur átt farsælt samstarf við ISS World services frá upphafi. Fjárfesting nýrra eigenda er viðurkenning á þeim árangri og uppbyggingu sem unnið hefur verið að undanfarin ár. Við horfum bjartsýn til framtíðar og félagið fær nýja eigendur með verðmæta innlenda og alþjóðlega þekkingu sem mun nýtast félaginu og viðskiptavinum okkar vel. Fyrirtækið verður rekið áfram í óbreyttri mynd með sama starfsfólki, en það hefur verið lykillinn á bak við þennan frábæra árangur. Við stefnum ótrauð að því markmiði að verða fremsta þjónustufyrirtæki á Íslandi.“
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira