Eiginmaður Strelle sagður sturlaður af afbrýðisemi Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2016 21:39 Hið skelfilega mál teygir anga sína með óbeinum hætti til Íslands, en Hjörleifur Valsson þekki þau hjónin vel. Og Martin hefur komið til Íslands og dvalið hér á landi.
Nú standa yfir réttarhöld yfir John Martin á Englandi, sem sakaður er um að hafa drepið konu sína, konsertpíanistann Natalie Strelle á hrottafenginn hátt. Hún var barin sundur og saman, svo illa að andlitsbein hennar voru laus frá afgangi höfuðkúpunnar og þá var hún kyrkt. Klassíski heimurinn stendur á öndinni vegna þessa skelfilega máls, sem teygir anga sína til Íslands, en hjónin voru góðir vinir fiðlusnillingsins Hjörleifs Valssonar.Hjörleifur sagði Vísi frá hinu stormasama sambandi þeirra Martins og Strelle í september í fyrrra. Hjörleifur sagði meðal annars þá að flestir sem til þekktu hafi óttast, og í raun beðið þess, að sambandið myndi enda og þá með ósköpum. Hjörleifur hefur starfað með þeim báðum og Martin kom til Íslands og dvaldi hér á landi um hríð.Indipendent fjallar um réttarhöldin en þar kom fram að Martin hafi misst stjórn á skapi sínu. Natallia Strelchenco, sem var 38 ára gömul af rússnesku bergi brotin, var einnig þekkt sem Natalia Strelle en hún fannst látin að heimili hennar og norska bassaleikaranum John Martin í fyrra. Hún hafði verið lamin svo illa að hún kjálki hennar var algerlega í sundur og andlitsbeinin voru laus frá höfuðkúpunni. Martin, sem er 48 ára gamall, var sagður sjúklega afbrýðisamur vegna þess að kona hans hafði notið miklu meiri velgengni á tónlistarsviðinu en hann sjálfur. Þetta rímar við það sem Hjörleifur sagði í viðtali Vísis, en Martin hafði að verulegu leyti snúið sér að heimasíðugerð og umboðsmennsku. Saksóknarinn Robert Hall segir: „Þetta mál snýst um stjórnlausa reiði, hreina og klára, sakborningurinn hafði ekki öðlast það sem hann sóttist eftir, missti stjórn á skapi sínu með þessum hroðalegu afleiðingum.“ Martin hins vegar neitar sök, hann segist reyndar ekki muna neitt frá kvöldinu skelfilega, sem var 30. ágúst. Talið er líklegt að verjandi hans muni bera við stundarbrjálæði. Hins vegar virðist fátt benda til þess að hann sé saklaus. Þetta kvöld hafði pólskur víóluleikari, vinkona þeirra, dvalið að heimili þeirra og hún hefur borið að Martin hafi hent sjálfum sér og Strelchenko niður stigann áður en hann kyrkti hana. Konan flúði af vettvangi. Þegar lögreglan kom á vettvang var Martin á efri hæðinni og öskraði við handtökuna: „Drepið mig!“
Tengdar fréttir Mátti sjá fyrir að sambandið myndi enda með ósköpum Hjörleifur Valsson fiðluleikari var á tímabili náinn vinur John Martin, sem grunaður er um að hafa myrt Nataliu Strelle píanista með hrottalegum hætti um síðustu helgi – og starfaði með þeim báðum. 4. september 2015 14:25 „Nú deyrð þú!“ Hið hörmulega morð í Manchester, sem norskur eiginmaður konsertpíanista er grunaður um, hefur vakið mikla athygli á Norðurlöndum. Samband þeirra var stormasamt og var eiginmaðurinn dæmdur árið 2012 fyrir ofbeldi og hótanir gegn konu sinni. 7. september 2015 11:02 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Sjá meira
Mátti sjá fyrir að sambandið myndi enda með ósköpum Hjörleifur Valsson fiðluleikari var á tímabili náinn vinur John Martin, sem grunaður er um að hafa myrt Nataliu Strelle píanista með hrottalegum hætti um síðustu helgi – og starfaði með þeim báðum. 4. september 2015 14:25
„Nú deyrð þú!“ Hið hörmulega morð í Manchester, sem norskur eiginmaður konsertpíanista er grunaður um, hefur vakið mikla athygli á Norðurlöndum. Samband þeirra var stormasamt og var eiginmaðurinn dæmdur árið 2012 fyrir ofbeldi og hótanir gegn konu sinni. 7. september 2015 11:02