Skáka þúsundum fyrirtækja í Evrópu 20. desember 2016 11:00 Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical
Hátæknifyrirtækið Nox Medical hefur tryggt sér háan styrk úr Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins í samkeppni við þúsundir lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu. Rökstuðningur styrkveitingarinnar til Nox Medical byggir á því að fyrirtækið muni á næstu árum hanna og þróa byltingarkenndar lausnir á sviði svefnrannsókna. Styrkurinn nemur tveimur milljónum evra eða um 240 milljónum íslenskra króna að núvirði.Skáka þúsundum fyrirtækja Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, segir að þau fyrirtæki sem koma til greina til þessarar styrkveitingar hafi færri en 250 starfsmenn og 50 milljónir evra eða minna í veltu. Undir þessi skilyrði falli nær öll fyrirtæki Evrópu önnur en alþjóðleg stórfyrirtæki og starfsemi þeirra sem til greina koma er því afar víðtæk. „Þau fyrirtæki sem valin eru eiga það sammerkt að vinna að byltingarkenndri tækni á sínu sviði, sem getur breytt því landslagi sem fyrir er. Til að fá styrkinn vegur það hæst í mati á styrkveitingunni að líklegt sé að hann skili árangri og því þýðir þetta að okkar fyrirtæki sker sig úr í hópi þess gríðarlega fjölda fyrirtækja sem þarna sækir um,“ segir Pétur. „Vandamál sem tengjast svefnröskunum eru algengari en margur heldur. Það eru skilgreindir nærri 100 sjúkdómar, eða sjúkdómsgreiningar, hjá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni (WHO) sem tengjast svefntruflun,“ segir Pétur. Sýnt hefur verið fram á sterk tengsl svefnraskana við m.a. sykursýki, offitu, háþrýsting, hjartabilun, kransæðasjúkdóma og mörg önnur stærstu heilbrigðisvandamál mannkyns í dag. Þá eru ótalin vinnu- og umferðarslys þar sem þreyta leikur stærra hlutverk en almennt er viðurkennt. Pétur segir að svefnraskanir séu í raun lýðheilsuvandamál, en afleiðingar svefnraskana eru taldar kosta Evrópuþjóðir um 300 milljarða evra árlega og fer kostnaðurinn hratt hækkandi. Margir segja það hins vegar stórkostlega vanmetna tölu, segir Pétur, einfaldlega vegna þess að margir sem eiga við svefntruflanir að stríða gera sér ekki grein fyrir því í hverju vandi þeirra liggur. Af þeirri ástæðu er því einnig gríðarlega mikilvægt að heilbrigðiskerfin hafi tól og tæki til þess að greina og meðhöndla svefnsjúkdóma á skilvirkan hátt. Verkefnið sem styrkurinn var veittur út á gengur út á að þróa byltingarkenndar aðferðir og tækni sem gerir mælingar á svefni og svefnstöðugleika einfaldari og þar með aðgengilegri en áður hefur þekkst. Þar sem svefnraskanir eru mjög algengar þá er mikilvægt að aðgengi og kostnaður slíkra mælinga sé ásættanlegur fyrir heilbrigðiskerfi nútímans. Núverandi aðferðir eru kostnaðarsamar og henta jafnvel illa fyrir stóra þjóðfélagshópa svo sem börn sem þurfa þá undantekningalaust að undirgangast hefðbundna svefnmælingu með innlögn á sjúkrastofnun. Hugmyndir Nox Medical ganga út á að leysa þetta kerfisvandamál með nýrri tækni í gervigreind, merkjafræði og úrvinnslu gagna.Ekki eylandNox Medical er ekki eyland í þessum rannsóknum sínum. Fyrirtækið starfrækir sérstakt rannsóknarteymi til þess að vinna að framþróun svefnmælitækninnar í nánu samstarfi við vísindamenn. Þannig má brúa bilið á milli nýjustu þekkingar á heilbrigðissviðinu yfir í vöruþróun. Nox hefur um árabil starfað náið með svefnrannsóknardeild Landspítala – Háskólasjúkrahúss að metnaðarfullum verkefnum. Í þessu verkefni er Nox einnig í samstarfi við margar af virtustu rannsóknamiðstöðvum á þessu sviði s.s. Harvard-háskóla í Boston, Stanford-háskóla í Kaliforníu og Imperial College í London. Fyrirtækið hefur notið styrkja frá Rannís frá upphafi og hefur Rannís ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitt rannsóknarteyminu mikilvæga aðstoð og ráðgjöf í umsóknarferlinu til Evrópusambandsins. Nox Medical ehf. er stofnað 2006 af verkfræðingum og heilbrigðisvísindafólki sem áður unnu hjá fyrirtækinu Flaga Medcare sem þá var verið að flytja úr landi. Stofnendur einsettu sér að þróa nýja kynslóð svefngreiningarlausna sem hentuðu meðal annars við rannsóknir og meðhöndlun svefntruflana bæði barna og fullorðinna. Vöxtur Nox Medical hefur verið mikill á undanförnum árum; nú starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu. Pétur segir það gleðilegt að stækkun fyrirtækisins á stuttum tíma – eða rúmlega 40 stöðugildi – sé hámenntað fólk sem margt er að koma heim til Íslands að loknu háskólanámi til að vinna hjá Nox Medical.Tíföld velta Uppgangur Nox Medical hefur verið hraður og hefur velta félagsins tífaldast á síðustu fimm árum og var um 1,5 milljarðar króna árið 2015. Í dag er Nox Medical í fararbroddi þeirra fyrirtækja sem hanna og framleiða lausnir til greiningar á svefntruflunum og meira en ein milljón manna um allan heim fær greiningu á svefnvanda sínum, þar sem lækningatæki Nox Medical eru notuð, segir Pétur og bætir við að stærsti keppinautur Nox Medical sé Philips – alþjóðlegur risi með nær ótakmarkaða möguleika til að fjármagna sínar rannsóknir og þróunarstarf. „Það er mikið af hæfileikaríku fólki sem hefur leitað út fyrir landsteinana til að afla sér menntunar en finnur ekki tækifæri við hæfi hérna heima. Í því ljósi eru fyrirtæki eins og okkar kærkomin viðbót við flóru atvinnutækifæra hér á Íslandi,“ segir Pétur.Starfsmenn Nox Medical eru um 50 – margir komu heim eftir nám til að vinna hjá fyrirtækinu. Fréttablaðið/Anton
Mest lesið „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Sjá meira