Útganga Breta úr ESB gæti leitt til uppstokkunar í Evrópu Heimir Már Pétursson skrifar 30. janúar 2016 16:55 Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir engan hafa komið fram með fullnægjandi svör við því hvað tæki við ef Bretar ganga úr Evrópusambandinu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðild þeirra á næsta ári. Þeim sem vilja að Bretar ganga úr sambandinu hefur vaxið ásmegin undanfarna mánuði og verið fleiri en þeir sem vilja aðild. En í dag birtir Sky fréttastofan nýja könnun þar sem 54 prósent Breta segjast vilja vera áfram í sambandinu, 36 prósent vilja úrsögn en 10 prósent eru óákveðin. „Hvað þá? Ef að ákveðið verði að ganga úr ESB. Með hvaða hætti ætla menn þá að tryggja efnahagslega hagsmuni Bretlands? Vegna þess að enginn sér aðild að EES, með því áhrifaleysi sem að þeirri aðild fylgir, sem raunverulegan valkost fyrir Bretland,“ segir Árni Páll. Það sé ómögulegt að segja hvaða áhrif útganga Breta myndi hafa á samskipti Íslendinga við þá og stöðu Íslands í Evrópu og mögulega aðildarumsókn í framtíðinni. Útganga Breta gæti leitt til frekari uppstokkunar í Evrópu. „Það er auðvitað þannig að það eru líka margir þættir sem að eru að valda þrýstingi á Evrópusambandið núna, eins og flóttamannavandinn og önnur slík verkefni. Sem eru hins vegar þess eðlis að þau eru ekki auðleysanlegri ef að ríkin slíta samstarfi við önnur ríki.“ Hins vegar hafi enginn málsmetandi stjórnmálamaður í Bretlandi getað útlistað hvað ætti að taka við ef Bretar yfirgefa Evrópusambandið. „Meira að segja forsætisráðherra Bretlands, sem er að hefja þessa vegferð, hann vill ekki að Bretlandi gangi úr Evrópusambandinu. Þannig að þetta er svolítið skrítið, að bjóða fólki upp á valkost um eitthvað sem að enginn treystir sér til að taka ábyrgð á,“ sagði Árni Páll Árnason.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira