Bæði ríkið og hjúkrunarheimilin líti í eigin barm Una Sighvatsdóttir skrifar 16. janúar 2016 18:45 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Stjórnendur hjúkrunarheimilanna í landinu boðuðu til neyðarfundar í gær vegna erfiðrar fjárhagsstöðu, en þeir áætla að allt að tvo milljarða króna til viðbótar vanti í málaflokkinn á þessu ári. Spurður hvort raunhæft sé að mæta þeirri kröfu segir heilbrigðisráðherra að skiptar skoðanir séu um forgangsröðun fjármuna inn í rekstur heilbrigðisstofnana. „Mér er vel kunnugt um það að sum hjúkrunarheimilanna eiga í rekstrarerfiðleikum og það er full ástæða til að fara yfir þá hluti með forsvarsmönnum í velferðarþjónustu. Aðstæður þeirra eru mjög mismunandi, og sömuleiðis ríkisins líka til þess að mæta þessu."Sammála um að hægt sé að gera betur Kristján Þór segir óhætt að fullyrða að stjórnvöld hafi unnið að því að styrkja málaflokkinn, en hinsvegar hafi forgangsröðunin innan heilbrigðismála verið til annarra og stærri þátta en öldrunarþjónustu, til dæmis til Landspítalans. Alltaf megi deila um hvort nægilega vel sé gert. „Skiljanlega eru skiptar skoðanir um þetta, en ég held að flestir séu á sama máli um það að það er hægt að gera betur og það er knýjandi þörf á því að mæta þessum vaxandi þætti íslenskra heilbrigðismála, sem er hjúkrunarþjónustan. En veruleikinn er sá að við munum hinsvegar aldrei byggja yfir þetta verkefni heldur þurfum við líka að horfa til annarra þátta, sem við erum farin að gera. Til dæmis með því að styrkja heimahjúkrun heilsugæslunnar."Skorast ekki undan fundi Hann segist ekki eiga von á öðru en að kröfu hjúkrunarheimilanna um fund með bæði heilbrigðis og fjármálaráðherra verði mætt. „Fyrir mína parta er ég til í fund með þeim hvenær sem er, og hefur ekki staðið á mér að eiga fund með þessu ágæta fólki. Hvernig síðan áætlanagerðarframhaldið verður, það er ómögulegt að segja til um það. Því ég held að í stöðu sem að byggist upp með þessum hætti þá þurfi báðir aðilar að líta í eigin barm."
Tengdar fréttir Hjúkrunarheimilin vantar allt að tvo milljarða króna Þungt hljóð var í stjórnendum hjúkrunarheimilanna í landinu á neyðarfundi sem haldinn var í dag vegna erfiðrar fjárhagsstöðu heimilanna. Þeir áætla að á þessu ári vanti allt að tvo milljarða króna til viðbótar í málaflokkinn svo hægt sé að koma í veg fyrir að skerða þurfi þjónustu við íbúana. 15. janúar 2016 18:39 Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Fleiri fréttir Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Sjá meira
Hjúkrunarheimilin vantar allt að tvo milljarða króna Þungt hljóð var í stjórnendum hjúkrunarheimilanna í landinu á neyðarfundi sem haldinn var í dag vegna erfiðrar fjárhagsstöðu heimilanna. Þeir áætla að á þessu ári vanti allt að tvo milljarða króna til viðbótar í málaflokkinn svo hægt sé að koma í veg fyrir að skerða þurfi þjónustu við íbúana. 15. janúar 2016 18:39