Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. janúar 2016 16:50 Mynd sem lögreglan óskaði eftir að birt yrði af manninum í fjölmiðlum. mynd/lrh
Maður sem grunaður er um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur í desember síðastliðnum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 16. febrúar næstkomandi. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 18. desember síðastliðnum en meint brot hans áttu sér stað aðfaranótt 13. desember. Fram kemur í úrskurði héraðsdóms vegna gæsluvarðhaldsins nú að þau brot sem manninum séu gefin að sök séu alvarleg og „að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á [...]“Greip um munn stúlkunnar, reif buxurnar hennar og reyndi að hneppa frá sínum Eins og áður segir er maðurinn grunaður um að hafa ráðist á og reynt að nauðga tveimur stúlkum. Fyrri árásin átti sér stað á Tjarnargötu í Reykjavík en tilkynningu um hana barst lögreglu klukkan 03.05 um nóttina. Á vettvangi hitti lögreglan fyrir stúlku sem var í miklu uppnámi. Hún sat í snjónum í rifnum buxum og grét. Hún lýsti því að hún hafi verið að ganga heim úr bænum þegar hún tók eftir manni sem gekk fyrir aftan hana á Tjarnargötunni. Hann gekk mjög nálægt henni, hún hafi orðið hrædd og vikið sér til hliðar svo maðurinn gæti gengið framhjá henni. Maðurinn hafi hins vegar stoppað ofar í götunni en stúlkan hélt för sinni áfram. Þegar hún gekk framhjá manninum hafi hann svo gripið í hana, reynt að taka af henni símann og kallað hana „bitch.“ Svo hafi maðurinn gripið um munn stúlkunnar, ýtt henni að húsinu, rifið buxurnar hennar og reyndi að hneppa frá buxunum sínum. Stúlkan hafi þá öskrað eins hátt og hún gat en hún sagði lögreglu að hún hafi verið þess fullviss að maðurinn ætlaði að nauðga henni. Hann hafi verið harkalegur við hana en hún öskraði meira og þá kom fólk að þeim. Við það hafi maðurinn farið.Önnur árás aðeins fimm mínútum síðar Aðeins fimm mínútum eftir að tilkynning um þessa árás barst lögreglu kom tilkynning um aðra árás á stúlku í Þingholtsstræti. Þar hafi lögreglan hitt stúlkuna sem var grátandi og í miklu uppnámi. Hún lýsti því að hafa verið ein á gangi upp Bankastrætið þegar maður hafi komið aftan að henni og lagt hendi yfir axlir hennar. Maðurinn hafi svo gripið fastar og fastar utan um hana og hún reynt að losa sig en hann hafi þá gripið um munn hennar og gengið ákveðið með hana inn Þingholtsstrætið. Þau hafi ekki verið komin langt inn götuna þegar maðurinn hafi svo kastað henni utan í bíl sem lagt var í Þingholtsstræti og reynt að setjast klofvega yfir hana. Kvaðst stúlkan að sér hefði liðið allan tímann eins og hann ætlaði að nauðga henni en síðan hafi líklega einhver komið að því allt í einu hafi maðurinn hlaupið í burtu. Á meðal gagna í málinu eru upptökur úr eftirlitsmyndavélum miðbæjarins en myndir úr myndavélunum voru birtar í fjölmiðlum þann 16. desember síðastliðinn að beiðni lögreglu. Fjöldi ábendinga hafi borist lögreglu í kjölfarið og þá hafði maðurinn sjálfur samband við lögreglu og kvaðst þekkja sig á myndunum. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að maðurinn neiti sök.
Tengdar fréttir Grunaður um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur Önnur árásin er öll til á upptöku úr eftirlitsmyndavél. 24. desember 2015 09:43 Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Fleiri fréttir Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið Sjá meira
Grunaður um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur Önnur árásin er öll til á upptöku úr eftirlitsmyndavél. 24. desember 2015 09:43