Velta í smásöluverslun ekki verið meiri síðan 2008 Sæunn Gísladóttir skrifar 13. september 2016 06:45 Sögulega var einkaneysla mjög mikil árið 2015 og litlu minni en þegar hún var mest árið 2007. vísir/vilhelm
Heildarvelta smásöluverslunar án virðisaukaskatts var á árinu 2015 tæpir 400 milljarðar króna samanborið við 376 milljarða árið áður. Vöxtur í veltu frá fyrra ári var 5,8 prósent og hefur ekki verið meiri milli ára frá hruni. Þetta kemur fram í Árbók verslunarinnar 2016. Í Árbókinni kemur fram að heildarveltan hafi ekki náð sömu hæðum og fyrir hrun, þrátt fyrir kaupmáttaraukningu, en hafi hins vegar ekki verið hærri síðan árið 2008. Velta var mest í dagvöru og stórmörkuðum og nam þar 208 milljörðum króna. Vísbendingar eru um að neysla sé frábrugðin frá neyslunni fyrir hrun. Einkaneysla jókst um fimm prósent á milli ára á meðan kaupmáttaraukning jókst um átta prósent, því er ekki öllum tekjum varið beint í neyslu. Einkaneysla Íslendinga nam 1.128 milljörðum króna árið 2015 og jókst um tæp fimm prósent á milli ára. Sögulega var einkaneysla mjög mikil árið 2015 og litlu minni en þegar hún var mest árið 2007. Mestur var vöxturinn í kaupum á ökutækjum en þau jukust um 56,9 prósent frá fyrra ári. Hlutur verslunar af landsframleiðslu árið 2015 var 9,6 prósent og hefur hlutur verslunar í landsframleiðslu ekki verið hærri frá 2007. Athyglisvert er að mesta fjölgun verslana á síðasta ári var í flokki netverslana, eða um sex prósent. Áætlað er að velta innlendrar netverslunar árið 2015 hafi verið að lágmarki um fimm milljarðar króna og aukist um 27 prósent frá árinu áður. Erlendir ferðamenn héldu áfram að strauja kort sín sem aldrei fyrr. Erlend kortavelta í verslunum jókst um 23 prósent milli ára og nam 22,7 milljörðum króna árið 2015. Hlutdeild þeirra af heildarveltu íslenskra smásöluverslana nam sex prósentum af heildarveltu árið 2015. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira