Laun allra starfsmanna Orkuveitunnar hækki jafn mikið og hjá forstjóranum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. mars 2015 07:00 Forstjórar eru ekkert í öðru samfélagi en við hin, segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar sem á fimmtíu félagsmenn hjá Orkuveitunni. Fréttablaðið/GVA „
Þetta er sérkennilegt á allan máta,“ segir Sigurður Bessason, formaður stéttarfélagsins Eflingar, um launahækkanir Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Fram kom í Fréttablaðinu á laugardag að laun Bjarna hafa hækkað úr 1.340 þúsund krónum frá því hann settist í forstjórastól OR fyrir fjórum árum í 2,4 milljónir í dag. „Við sömdum fyrir ári og almenn hækkun var 2,8 prósent og hækkun á launatöflum var frá 4,2 prósentum upp í 5,1 prósent. Í krónutölu var það 9.750 krónur á lægstu launum,“ segir Sigurður. Frá því Bjarni tók við forstjórastarfinu hefur hann sest í stjórn tveggja dótturfélaga Orkuveitunnar og fær fyrir það 400 þúsund krónur aukalega.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar fékk launahækkun með nýjum samningi.Fréttablaðið/GVA„Það er íhugunarefni að hér áður fyrr féll þetta undir hlutverk forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur að sjá um öll þessi fyrirtæki þannig að ég veit ekki hver eðlismunur hafi orðið á starfi hans sem gerir það að verkum að það var nauðsynlegt að greiða sérstaklega fyrir að það væri búið að setja upp þessi þrjú félög,“ segir Sigurður. Laun Bjarna forstjóra voru sögð hækkuð í samræmi við niðurstöður starfskjaranefndar OR. „Ég veit ekki hvert þessi starfskjaranefnd hefur sótt sínar viðmiðanir, það er að minnsta kosti ekki í almennar launabreytingar á vinnumarkaði,“ segir Sigurður. Samningar Eflingar við OR eru að renna út. Sigurður býst við að kröfur gagnvart fyrirtækinu verði settar fram í næsta mánuði. „Auðvitað hafa svona ákvarðanir áhrif á það sem gerist í framhaldinu. Forstjórar eru ekkert í öðru samfélagi en við hin. Og ef fyrirtækin eru svona vel stöndug til þess að greiða svona launatölur þá er eðlilegt að starfsmennirnir krefjist sambærilegra launabreytinga.“ Fréttablaðið hafði eftir Haraldi Flosa Tryggvasyni, formanni stjórnar OR, að Bjarni væri ákaflega hæfur og það skýrði nauðsyn þess að hækka laun hans. Sigurður segir alla í fyrirtækjum mikilvæga til þess að þau séu vel rekin. Líka starfsmenn á gólfinu: „Það er einfaldlega enginn miskunn á því. Ef forstjórinn er ekki með góða starfsmenn þá er lítill árangur í rekstri fyrirtækisins. Þessi rök ná því ekkert mjög langt en menn hafa nýtt sér þau í alltof langan tíma til að draga fram óraunhæfar hækkanir til forstjóra. Menn eiga að sýna af sér hógværð og huga að því að fyrirtækið er ein eining þar sem allir starfsmenn hafa ákveðnu hlutverki að gegna – að sjálfsögðu forstjórinn eins og aðrir en hann á ekki að skapa óeiningu með svona óhóflegum launabreytingum.“
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Innlent „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Innlent Fleiri fréttir Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli Sjá meira