Kona á Akureyri að kafna í köttum Jakob Bjarnar skrifar 6. júlí 2015 16:37 Bjargvættur kattanna á Akureyri. Hún sættir sig vel við að vera kölluð Kattakonan fyrir norðan.
Ragnheiður Gunnarsdóttir er mikill dýravinur og hún hefur nú árum saman starfað við það í sjálfboðavinnu að annast ketti sem lenda á vergangi á Akureyri. Nú er svo komið að hús hennar er orðið troðfullt af köttum. Hún hefur varla tölu á því lengur, en telst til að hún sé með 16 kettlinga og 8 fullorðnar. „Já, fyrir utan mína. Ég er að reyna að gera talningu,“ segir Ragnheiður í samtali við Vísi.Villikattastofn á AkureyriRagnheiður segist hafa verið að fylgst sérstaklega með villiköttum bæjarins allt frá árinu 2002, henni hafi runnið til rifja hversu illa var fyrir þeim mörgum komið og árið 2012 stofnaði hún Kisukot, sem er í raun heimili hennar.Og, nú ert þú sem sagt að kafna í köttum? „Já, það má segja það,“ segir Ragnheiður í léttum dúr. „Ég fór að taka inn villiketti þegar svo bar undir og svo hafði fólk líka samband ef ketti var að finna. Ég reyni aðallega það taka þessa ketti inn sem eru úti. Bjarga þeim. Þannig að þeir verði ekki villikettir. Þeir hafa forgang hjá mér.“Í nægu er að snúast hjá Ragnheiði við að sinna öllum þeim köttum sem hún hefur skotið skjólshúsi yfir.Ragnheiður segir að það sé gamall villikattastofn á Akureyri, þannig sé í raun í flestum bæjarfélögum.Köttum hent út á guð og gaddinn„Og svo er líka alltaf að finna heimilisketti sem fólk hefur hreinlega hent út á guð og gaddinn. Skyldir eftir í pappakössum. Mikið vandamál í Reykjavík. Og líka á Akureyri. Meira um það með þessa stóru að fólk hefur týnt þeim eða losað sig við þá. Í það minnsta svara fæstir auglýsingum.“ Ragnheiður segir Akureyrarbæ ekkert standa sig of vel í þessum efnum. „Hann er með sinn dýraeftirlitsmann. En, það er bara lógað eftir einhvern vissan tíma, dýrageymslur, ekkert verið að reyna að finna heimili fyrir dýrin.“Oft kölluð „Kattakonan“Og nú er húsið þitt fullt af köttum? „Jú, ég er að komast í vandræði með þetta. Og hef aldrei frí. Og auðvitað fylgir að maður þarf að standa í þrifum meira en gerist og gengur. Það gengur ágætlega að koma kettlingunum út, þeir fá oftast heimili, en gengur verr að koma þessum stóru út. Ég er nú með fimm sex vikna kettlinga sem eru búnir að vera hjá mér síðan þeir fundust úti nýfæddir; eitt got, fimm saman. Voru villikettir, fæddir af villiketti,“ segir Ragnheiður sem oft er kölluð kattakonan á Akureyri: „Ég sætti mig bara við það.“
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira