Anna Birta stóðst skyggnilýsingapróf upp á hundrað Snærós Sindradóttir skrifar 4. nóvember 2015 08:00 Bryndís Emilsdóttir miðill og Magnús Harðarson, forseti Sálarrannsóknarfélags Íslands, vilja að efahyggjumenn láti þau í friði með sína trú. vísir/gva „
Það er til fólk sem er að svindla í þessu eins og í öllu, það er til fólk sem er að stela og það er til fólk sem er óheiðarlegt. Það er alls staðar og líka í þessum geira,“ segir Magnús Már Harðarson, forseti Sálarrannsóknarfélags Íslands. Á mánudag vakti athygli viðtal á Stöð 2 á milli Frosta Logasonar fjölmiðlamanns og Önnu Birtu Lionaraki vegna skyggnilýsingafunds sem Anna hélt á sunnudag. Þar sakaði Frosti Önnu meðal annars um að vera svikamiðill og nýta sér neyð fólks. „Við hjá Sálarrannsóknarfélaginu prófuðum Önnu mjög nákvæmlega og hún stóðst öll próf alveg upp á hundrað,“ segir Magnús. Að sögn Magnúsar fara prófin þannig fram að hlutlaus miðill er fenginn til að meta miðilsgáfu umsækjanda. Þá setjist stjórn félagsins niður með viðkomandi og biðji um skyggnilýsingu. Anna hafi staðist hans viðmið, sem felst í því að geta sagt honum eitthvað sem enginn veit nema hann. Magnús segir að fólk sem ekki geti haft samband við handanheim guggni á prófi félagsins. „Þeir vita eins og er að þeir munu ekki standast það. Svo er annað í þessu sem er mjög algengt, að fólk er með hæfileika en ekki nógu mikinn hæfileika. Það eru ekki allir eins og Víkingur Heiðar Ólafsson, en spila á píanó engu að síður.“Jóhann BjörnssonBryndís Emilsdóttir miðill segist ekki þekkja miðla sem vinni af óheilindum. Hún segir að efahyggjufólk geti borið með sér neikvæða orku sem hafi áhrif á skyggnilýsinguna. Jóhann Björnsson, heimspekingur og formaður Siðmenntar, segir siðferðileg álitaefni um miðla togast á, annars vegar hvort það eigi að segja satt og rétt frá og hins vegar hvað lætur fólki líða vel. „Ég hef efasemdir um að það sé rétt að fara með ósannindi beinlínis til að láta fólki líða vel. Varðandi dáið fólk og dauðann þá myndi ég halda að það væri farsælast að fólk horfist í augu við að lífið er bara frá fæðingu til dauða,“ segir Jóhann. Siðferðilegar spurningar eru knýjandi þegar peningar eru teknir fyrir skyggnilýsingar segir Jóhann. „Það er sérstaklega alvarlegt ef fólk hefur ekkert fyrir sér í þessu og er að rukka fyrir þetta því þá eru það bara hrein og klár svik,“ segir Jóhann Björnsson.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira