Bein útsending: Seðlabankinn skýrir frá vaxtaákvörðun sinni ingvar haraldsson skrifar 9. desember 2015 09:45 Þórarinn G. Pétursson og Már Guðmundsson, nefndarmenn í peningastefnunefnd. vísir/stefán
Peningastefnunefnd ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum og yrðu áfram 5,75 prósent. Hins vegar var ákveðið að lækka bindskyldu á ný í 2,5 prósent eftir að hún hafi verið hækkuð í 4 prósent í september. Á fundi í morgun greindu fulltrúar nefndarinnar frá ákvörðun sinni fundinn má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. Þá tilkynnti peningastefnunefndin um að líkur væru á að stýrivextir yrðu hækkaðir á ný á næstunni. „Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni.“Í tilkynningu frá Peningastefnunefnd kemur fram að samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands var hagvöxtur 4,5% á fyrstu þremur fjórðungum ársins sem hafi í meginatriðum verið í samræmi við nóvemberspá Seðlabankans. Kröftugur bati haldi einnig áfram á vinnumarkaði. Þá hafi verðbólguhorfur til skamms tíma hafa batnað frá nóvemberspá bankans. „Verðbólga mældist 2% í nóvember. Hún hefur aukist minna undanfarið en spáð var vegna þess að lækkun alþjóðlegs hrávöru- og olíuverðs og hækkun á gengi krónunnar hafa vegið á móti innlendum verðhækkunum.“ Ástæða lækkunar bindiskyldu var að auðvelda Seðlabankanum stýringu á lausu fé bankakerfisins í tengslum við gjaldeyriskaup Seðlabankans og losun fjármagnshafta. „Peningastefnunefnd hefur nú ákveðið að lækka bindiskyldu á ný úr 4% í 2,5% frá og með næsta bindiskyldutímabili sem hefst 21. desember nk. til þess að milda lausafjáráhrif afhendingar slitabúa gömlu bankanna á stöðugleikaframlögum. Áformað er að bindiskylda lækki að öðru óbreyttu á ný í 2% í tengslum við fyrirhugað útboð vegna svokallaðra aflandskróna.“Fundinum, sem var í styttra laginu, er nú lokið en hann má sjá í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira