Erlent

Ríkisstjóri Wisconsin tilkynnir um framboð

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Scott Walker er nýjasti meðlimurinn í stórum hóp frambjóðenda repúblikana.
Scott Walker er nýjasti meðlimurinn í stórum hóp frambjóðenda repúblikana. nordicphotos/afp
Bandaríkin Scott Walker, ríkisstjóri Wisconsin í Bandaríkjunum, tilkynnti í gær um framboð sitt til forseta fyrir Repúblikanaflokkinn.

Walker er fimmtándi repúblikaninn sem tilkynnir um framboð sitt. Úr hóp þeirra fimmtán verður einn valinn frambjóðandi flokksins á landsvísu.

Walker er þekktur fyrir að hafa svipt verkalýðsfélög opinberra starfsmanna í Wisconsin samningsrétti sínum. Varð það til þess að hópur kjósenda knúði fram kosningar þar sem kosið var um hvort víkja ætti honum úr embætti ríkisstjóra. Walker sigraði í þeirri baráttu með yfirburðum.

„Ég býð mig fram til forseta Bandaríkjanna því Bandaríkjamenn verðskulda leiðtoga sem mun berjast fyrir þá og sigra,“ sagði Walker í gær.

„Án þess að fórna hugsjónum okkar höfum við unnið þrennar kosningar á fjórum árum í fylki hlynntu demókrötum. Við gerðum það með því að vera leiðtogar. Nú þurfum við að gera slíkt hið sama fyrir Bandaríkin,“ bætti hann við.

Walker mælist með níu prósenta fylgi á landsvísu og er sá fjórði í röðinni á eftir Donald Trump, Jeb Bush og Rand Paul.

Ef Walker yrði kosinn yrði hann fyrsti forsetinn síðan 1953 sem ekki hefur háskólagráðu. Þá gegndi Harry Truman embættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×