Segir ríkið þykjast bundið af almenna markaðnum Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. júní 2015 07:00 Mótmæli BHM og hjúkrunarfræðinga. Páll Halldórsson, formaður samninganefndar, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, ræða við Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra fyrir ríkisstjórnarfund á föstudag. Fréttablaðið/Stefán
Ræða á þá alvarlegu stöðu sem uppi er í kjaradeilum ríkisins við BHM og við hjúkrunarfræðinga á samningafundum sem ríkissáttasemjari hefur boðað til fyrir hádegi í dag. Vika er frá því síðast var fundað og mikið sem ber í milli hjá deiluaðilum. Fyrri fundur dagsins, klukkan níu árdegis, er 23. fundurinn í deilu BHM og ríkisins. Hjúkrunarfræðingar funda klukkan ellefu.Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segist telja um stöðumatsfund að ræða, enn hafi ekkert nýtt komið fram sem ýtt geti undir bjartsýni um að hreyfing komist á viðræður. „Eins og er þá virðist ríkið vera bundið af þessum samningum á almenna vinnumarkaðnum,“ segir Ólafur og segir ríkið ekki virðast hafa heimildir til að semja við sitt starfsfólk. Hækkunin sem í boði er á almenna markaðnum sé ekki eitthvað sem hans félagsmenn geti sætt sig við. „Ríkið þarf að koma til móts við okkar kröfur á okkar forsendum, ekki á forsendum almenna vinnumarkaðarins.“ Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, segist hafa svipaðar væntingar til fundarins í dag og til funda yfirleitt. „Maður bara vonar að þetta þokist eitthvað áfram,“ segir hann. Í pistli á vef BHM er sagt furðu sæta að ríkið hafi ekki lagt allt kapp á að ná samningum áður en verkföll skullu á með fullum þunga fyrir níu vikum. Þar segir að BHM hafi ítrekað lagt fram ýmsar leiðir til lausnar og tekið jákvætt í að gera samning til fjögurra ára og lýst sig reiðubúið til að taka fyrstu skref í átt að „norrænu líkani“ við kjarasamningagerð. Ríkið hafi ekki komið að borðinu í alvöru og viðræðurnar kallaðar sýndarviðræður.Bryndís HlöðversdóttirBryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari kveðst vera í reglulegu sambandi við deiluaðila og leggur mat á hvort tilefni sé til funda. Til funda í dag sé boðað óháð því hvort tilefni sé til, í ljósi alvarleika stöðunnar. Hún segir tæki ríkissáttasemjara vera annars vegar að leggja fram sáttatillögu fyrir samninganefndirnar sem greitt gæti fyrir lausn deilu, eða miðlunartillögu sem lögð yrði fyrir félagsmenn. „Til að slík tillaga sé lögð fram verður hún að vera líkleg til að leysa deiluna. Hingað til hefur borið of mikið í milli manna í þessari deilu til þess að þær hafi verið tækar þessar leiðir sem eru til staðar til að höggva á hnúta. En þegar svona langt er á milli manna í sjálfum samningsgrunninum þá er það flókið.“Tíunda vika verkfalla BHM að hefjast Í dag er 65. verkfallsdagur fimm aðildarfélaga Bandalags háskólamanna (BHM) og tíunda vika í verkfalli að hefjast hjá þeim hópum. Þetta eru geislafræðingar, lífeindafræðingar, náttúrufræðingar og ljósmæður á Landspítalanaum, auk lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru aðgerðir ljósmæðra á Sjúkrahúsinu á Akureyri á 63. degi, en þar hafa verið lögð niður störf á mánudögum og fimmtudögum. Aðrir hópar BHM hafa verið í verkfalli í rúmar sjö vikur, eða frá 20. apríl. Þar eru undir hópar háskólamenntaðra starfsmanna Matvælastofnunar, náttúrufræðingar og aðrir háskólamenn hjá Matvælastofnun, auk dýralækna. Þá hefur ótímabundið verkfall hjúkrunarfræðinga staðið í tvær vikur, er í dag á 15. degi. Í vikulegum pistli fyrir helgi undrast Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hversu mikla þolinmæði sjúklingar sýna heilbrigðiskerfinu eftir langvarandi verkfall. „Það tekur á að vera í verkfalli og það er mikið andlegt álag. Langvarandi streita hefur áhrif á alla, á sjúklinga, á starfsfólk og á fjölskyldur þeirra,“ sagði hann í pistli sínum.
Verkfall 2016 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira