Skoðun

Makríll og markaðslausnir

Björt Ólafsdóttir og Guðmundur Steingrímsson skrifar

Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill að fiskistofnarnir séu í þjóðareigu. Það stendur líka í lögum að fiskistofnarnir séu sameign þjóðarinnar. Slíkt ákvæði ætti jafnframt að eiga sér stoð í stjórnarskránni.



Eigendur gæða vilja eðlilega hámarka þann arð sem eignir þeirra skila þeim. Þeir láta sér ekki duga að lesa um það í lögum eða blöðum að þeir séu eigendur að einhverju. Og hvers vegna skyldi það ekki eiga við líka um eign þjóðarinnar á fiskistofnunum?



Nú stendur Alþingi frammi fyrir því að ákveða framtíðarfyrirkomulag á veiðum á makríl. Í makrílstofninum liggja gríðarleg verðmæti. Útflutningsverðmæti hans var meira en 20 milljarðar króna á síðasta ári. Við í Bjartri framtíð viljum að hagsmunir þjóðarinnar allrar séu hafðir að leiðarljósi við nýtingu makrílstofnsins sem og annarra náttúruauðlinda. Við getum haft af þeim mikinn arð til mikilvægra samfélagslegra verkefna. Þannig tækifæri er auðvelt að klúðra. Mjög mörgum þjóðum sem eru í svipaðri stöðu hefur tekist það. Náttúruauðlindirnar hafa orðið þeim bölvun en ekki blessun. Leitt til spillingar, átaka og óréttlætis. Við verðum að varast það.



Ef við hámörkum arðinn í þágu þjóðarinnar allrar getum við bætt menntakerfið til hagsbóta fyrir alla landsmenn, heilsugæsluna, samgöngurnar og fjarskiptin. Við getum lækkað álögur á fólk og við getum haft fé til ráðstöfunar til að styrkja íbúa í byggðum sem standa höllum fæti, ekki síst vegna breytinga í sjávarútvegi. Það er bráðnauðsynlegt og réttlætismál að hluti af arðinum sem fiskveiðiauðlindin getur skilað þjóðinni verði nýttur sérstaklega til slíkra verkefna. Þar þurfum við líka að horfast í augu við að tæknin hefur þegar fækkað mikið atvinnutækifærum í veiðum og hefðbundinni vinnslu sjávarafla og sú þróun mun halda áfram.



En hvernig getum við best tryggt að eigandinn, íslenska þjóðin, fái það sem henni ber fyrir eign sína? Og hvernig getum við best tryggt að þeir sem fá réttinn til að sækja makrílaflann og selja hann greiði sanngjarnt verð fyrir? Verðið má hvorki vera svo lágt að arður þjóðarinnar af þessari eign verði óeðlilega lítill né svo hátt að útgerðirnar ráði illa eða ekki við það. Og hvernig getum við best tryggt að þeir sem gera mest verðmæti úr makrílaflanum fái helst réttinn til að sækja hann? Það eru gríðarlega miklir hagsmunir fólgnir í því fyrir íslenska þjóð að finna bestu svörin og leiðirnar í þessu.



Réttinn á að bjóða upp

Að mati Bjartrar framtíðar finnur markaðurinn sjálfur bestu lausnirnar, betri og sanngjarnari en stjórnvöld geta fundið og betri og sanngjarnari gagnvart eigandanum en þær sem sérhagsmunaaðilar benda gjarnan á.



Réttinn til að sækja makrílaflann á að bjóða upp. Þannig fær eigandinn, íslenskur almenningur, þann arð sem honum ber fyrir afnot af þessari eign og þannig greiða þeir sem fá að nýta eignina það verð sem þeir treysta sér til að greiða. Og þannig geta þeir sem mest verðmæti skapa úr makrílaflanum greitt meira en aðrir og fá því frekar réttinn til að sækja aflann. Þetta er ekki fullkomin aðferð frekar en önnur mannanna verk en hún er langbest fyrir eiganda auðlindarinnar, íslensku þjóðina, og hún er hagkvæmari og sanngjarnari en aðrar mögulegar leiðir.



Það er þó eðlilegt að þeir sem hafa stundað makrílveiðar á undanförnum árum fái nokkra aðlögun að nýju kerfi. Því leggur Björt framtíð það til að makrílkvótum verði ráðstafað á grundvelli uppboðs í áföngum á 6 árum, þannig að á þeim árum verði hluta makrílkvótans úthlutað til útgerða sem hafa aflareynslu í makríl en sá hluti fari minnkandi árlega. Að 6 árum liðnum verði öllum makrílkvótanum ráðstafað á grundvelli uppboðs.



Þegar markaðslausnir eru í þágu almannahagsmuna á hiklaust að nota þær. Uppboð á makrílkvótum er skýrt dæmi um svoleiðis kringumstæður.

Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×