Ofkeyrsla í líkamsrækt getur valdið varanlegum skaða Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 8. janúar 2015 07:15 „Þegar fólk fer af stað í líkamsrækt á það ekki að vera með nein læti,“ segir Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Æ algengara er að einstaklingar færist of mikið í fang í heilsurækt og verði fyrir varanlegum skaða. Þetta segir Gauti Grétarsson, sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Fyrir nokkrum árum greindi Gauti frá áhyggjum sínum af því að meiðslum, áverkum og álagseinkennum sem rekja mætti til allt of mikillar þjálfunar hefði fjölgað mikið. Hann segir ástandið nú vera orðið enn verra. „Það er fullt af fólki að ofkeyra sig í því sem á að vera heilsurækt. Skammtímaárangur af svokallaðri ofurþjálfun getur verið svakalega mikill en skemmdirnar á líkamanum geta orðið varanlegar. Það kom kona til mín um daginn í sjúkraþjálfun vegna skaða sem hún hlaut í bílslysi fyrir 40 árum. Eftir 40 ár munu kannski einstaklingar koma til sjúkraþjálfara vegna skaða sem þeir hlutu núna í crossfit eða bootcamp,“ segir Gauti.@kvót fréttasíður nafnogtitill:gauti GrétarssonHann tekur fram að margir setji sér alltof háleit markmið. „Í stað þess að miða að því að ná ákveðnum árangri á fjórum árum, eins og íþróttamenn gera til dæmis fyrir Ólympíuleika, ætlar fólk að ná þeim árangri á fjórum mánuðum. Þegar fólk fer af stað í líkamsrækt á það ekki að vera með nein læti. Fólk þarf jafnframt að kanna hvort sá sem þjálfar það hafi til þess einhverja þekkingu. En hver og einn ber ábyrgð á eigin heilsu. Það á ekki að láta djöfla sér út við æfingar og kenna svo bara þjálfaranum um. Fólk er alltaf að ofmeta eigin getu og það þarf ekki að æfa svona svakalega mikið.“ Gauti bendir á að lágmarkshreyfing til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma sé 30 mínútna hreyfing á dag með hóflegri áreynslu. Um geti verið að ræða röska göngu, sund, hjólreiðar, margvíslega leiki eða dans, vinnu í garðinum og inni á heimilinu. Að sögn Gauta gerir hreyfingin sama gagn þótt 30 mínútum sé skipt í nokkrar styttri lotur yfir daginn. Þjálfaðir íþróttamenn fara ekkert síður yfir strikið í æfingum en aðrir, að því er Gauti greinir frá. „Það er alltof mikil þjálfun í mörgum greinum íþrótta og einnig hjá krökkum. Margt efnilegt íþróttafólk er eyðilagt með of miklum æfingum. Krakkar sem æfa eðlilega fá næga þjálfun en þeir sem æfa ekki fá of litla þjálfun.“ Sjúkraþjálfarar fást við meiðslin, álagseinkennin og áverkana sem einstaklingar verða fyrir vegna of mikillar þjálfunar. En í alvarlegustu tilfellum þurfa einstaklingar að leita á bráðamóttöku, eins og þegar um rhabdomyolysis eða rákvöðvalýsu er að ræða. „Vöðvafrumur skemmast eða eyðileggjast og innihald þeirra fer út í blóðið. Nýrun hafa ekki undan við að hreinsa blóðið og ástandið getur orðið lífshættulegt. Það er talsvert um að fólk þurfi að fara inn á spítala vegna slíks ástands og miklu algengara en almenningur gerir sér grein fyrir,“ segir Gauti. Helstu einkenni rhabdomyolysis eru mikil eymsli og bólga í vöðvum sem verða mjög stífir. Meðal einkenna eru einnig hiti og ógleði.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira