Frestur til að samþykkja skuldaleiðréttingu gildir ekki um óbirtar lækkanir Nadine Guðrún Yaghi skrifar 18. mars 2015 11:30 Tryggvi Þór Herbertsson verkefnastjóri höfuðstólslækkunarinnar „
Fresturinn til þess að samþykkja lækkunina gildir ekki um þá aðila sem ekki hafa fengið hana birta og þeir missa því ekki rétt sinn eftir að hann rennur út,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri höfuðstólslækkunarinnar, aðspurður um áhrif frestsins á þá aðila sem ekki hafa fengið birta lækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána. Aðilar verða að samþykkja lækkun höfuðstóls íbúðalána vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar til þess að njóta réttarins. Fjögur þúsund manns hafa enn ekki fengið birta lækkunina en frestur til þess að samþykkja skuldaleiðréttinguna rennur út þann 23. mars næstkomandi. „Þessu verður háttað þannig að um leið og leiðréttingin verður birt fyrir viðkomandi hefur hann þrjá mánuði til þess að samþykkja.“ Af þeim fjögur þúsund manns sem ekki hafa fengið birta lækkunina er stór hluti dánarbú og segir Tryggi það auka flækjustigið. Þó séu einhverjir einstaklingar ekki búnir að fá hana birta og sé reynt eftir fremsta megni að senda þeim upplýsingar og kynna þeim að hún sé á leiðinni. Rúmlega 90 prósent þeirra sem hafa fengið birta lækkunina hafa nú þegar samþykkt hana. Starfsmenn ríkisskattstjóra hafa á síðustu misserum unnið í því að hringja í þá sem eiga eftir að samþykkja til þess að minna fólk á að fresturinn sé að renna út. „Það lítur út fyrir að það náist að hringja í alla þá sem eiga eftir að samþykkja,“ segir Tryggvi Þór.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Fleiri fréttir Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Sjá meira