Stærstu sjávarútvegsfyrirtækin eiga 70 prósent aflaheimilda Aðalsteinn Kjartansson skrifar 11. desember 2015 23:01 Samtals eiga fimm stærstu 31,14 prósent heimilda og þau tíu stærstu rúmlega helming, eða 50,45 prósent. Vísir
Unnið er að reglum um hámarkshlutdeild einstakra fyrirtækja í aflaheimildum. 20 stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins eiga 70,7 prósent aflaheimilda. Fyrirtækin hafa lítillega aukið við hlutdeild sína frá árinu 2010, þegar þau áttu 69,99 prósent. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn Oddnýjar G. Harðardóttur, þingkonu Samfylkingar um samþjöppun aflaheimilda og veiðigjöld. Þar kemur einnig fram að stærsta sjávarútvegsfyrirtækið eigi 10,86 prósent aflaheimilda. Aflahlutdeild stærsta fyrirtækisins hefur lækkað undanfarin tvö ár, frá því að hún var mest á því tímabili sem skoðað var; árin 2010 til 2015. Hæsta hlutdeild átti fyrirtækið árið 2013, þegar það átti 11,87 prósent aflaheimilda. Samtals eiga fimm stærstu 31,14 prósent heimilda og þau tíu stærstu rúmlega helming, eða 50,45 prósent. Samkvæmt svarinu eru aflaheimildir umreiknaðar til þorskígilda miðað við þá þorskígildisstuðla sem voru í gildi á hverjum tíma þegar hlutdeild er reiknuð út. Þá miðast staðan við skráð skip viðkomandi útgerða 1. september hvert ár og þær hlutdeildir sem þá voru bundnar við sömu skip. „Of mikil samþjöppun aflaheimilda er óæskilegt og þess vegna voru settar reglur um hámarksaflahlutdeild til að koma í veg fyrir það. Á hverjum tíma er þörf á að endurmeta allar reglur til að tryggja öruggari framkvæmd,“ segir Sigurður um hvort hann telji að samþjöppun aflaheimilda sé áhyggjuefni. „Nú er unnið að endurmati á reglum um hámarkshlutdeild í ráðuneytinu.“
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Bætist í eigendahóp Strategíu Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Sjá meira