Mikilvægasta niðurstaða frá stofnun WTO Óli Kr. Ármannsson skrifar 22. desember 2015 07:00 Martin Eyjólfson, fastafulltrúi Íslands í Genf
Samþykkt var bann við útflutningsbótum fyrir landbúnaðarafurðir á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) sem lauk fyrir helgi í Kenía. Bannið er sagt marka tímamót og lýsti Roberto Azavêdo, framkvæmdastjóri WTO, því svo að ákvörðunin væri mikilvægasta niðurstaða stofnunarinnar á sviði landbúnaðar frá stofnun hennar fyrir 20 árum. „Útflutningsbætur skulu að fullu afnumdar árið 2020 fyrir iðnríki og 2023 fyrir þróunarríkin. Ísland hefur þegar afnumið slíkar bætur,“ segir á vef utanríkisráðuneytisins. Þá var á fundinum staðfest niðurstaða um endurskoðun samnings um upplýsingatæknivörur. Hún er sögð fela í sér að þátttökuríki felli niður tolla á rúmlega 200 upplýsingatæknivöruflokkum. Rúmlega 50 ríki eru sögð aðilar að samkomulaginu, þar á meðal ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Kína, Kanada, Japan, Sviss, Noregur og Ísland. „Á árunum 2012 og 2013 fluttu íslensk fyrirtæki út vörur, svo sem rafeindavogir, röntgentæki og ýmis fjarskiptatæki, að verðmæti samtals 9 milljarða króna sem njóta munu tollfríðinda samkvæmt samningnum.“ Fyrir sendinefnd Íslands fór Martin Eyjólfsson, fastafulltrúi í Genf. Hann er í ávarpi sínu sagður hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að WTO sýndi meiri sveigjanleika í störfum sínum og léti þrátefli í Doha-viðræðunum ekki koma í veg fyrir að unnið yrði að málum sem meiri samstaða ríkti um. Hann hafi jafnframt lagt áherslu á mikilvægi þess að setja frekari skorður við ríkisstyrkjum í sjávarútvegi. „Þrátt fyrir breiðan stuðning á fundinum við tillögu um bann við ríkisstyrkjum sem renna til veiða á ofveiddum fiskistofnum eða ólöglegra fiskveiða náðist ekki samstaða um tillöguna.“
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira