Bein útsending: Seðlabankinn mætir á fund efnahags- og viðskiptanefndar ingvar haraldsson skrifar 11. nóvember 2015 08:30 Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gefa þinginu skýrslu. vísir/anton brink
Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands mættu á opinn fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Fundurinn fór fram samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands en er nú lokið. Upptöku frá fundinum má sjá í spilaranum hér að neðan. Þau gera ráð fyrir að peningastefnunefndin gefi Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og efni hennar sé rætt í nefndinni. Seðlabanki Íslands hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku og hefur samtals hækkað vexti um 1,25 prósentustig það sem af er ári. Hækkunin kom flestum á óvart. Til að mynda höfðu greiningardeildir bankanna búist við óbreyttum vöxtum. Viðbrögð markaðarins urðu þau að gengi hlutabréfa tók dýfu og vextir á skuldabréfamarkaði hækkuðu um 0,25 til 0,4 prósentustig. Peningastefnunefnd rökstyður hækkunina þannig að sterkari króna og hagstæðari alþjóðleg verðlagsþróun hafi gefið svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. „Það breytir hins vegar ekki því að þörf er á auknu aðhaldi peningastefnunnar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings. Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni og því hvernig greiðist úr þeirri óvissu sem nú er til staðar í efnahagsmálum,“ segir peningastefnunefnd. Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og Katrín Ólafsdóttir, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, mæta á fundinn. Öll eiga þau sæti í peningastefnunefnd.Upptöku frá fundinum má sjá í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Sjá meira