Meint fjármálamisferli innan Tólfunnar Jakob Bjarnar skrifar 11. nóvember 2015 16:08 Fjármálamisferli og tengsl eins úr Tólfunni er reiðarslag fyrir 12. mann íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Myndin er frá landsleik á Laugardalsvelli og tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
Annar þeirra sem tengist þeim nauðgunarmálum sem hafa verið til umfjöllunar undanfarna daga er meðlimur Tólfunnar, stuðningsmannafélags íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Hann er jafnframt einn þriggja manna sem grunaðir eru um að tengjast fjármálamisferli sem nú er til rannsóknar; kæra verður lögð fram á næstu dögum. Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða það að meðlimir Tólfunnar hafa gengið á milli fyrirtækja, safnað styrkjum í nafni félagsins en ætlað sér féð sjálfir. Um er að ræða umtalsverða fjármuni en Benjamín Hallbjörnsson, Benni bongó, formaður Tólfunnar segir að ekkert sé hægt að gefa upp um hversu mikið fé um ræðir á þessu stigi. Benjamín staðfestir aðspurður að einn þeirra sem um ræðir sé annar þeirra sem hefur verið kærður í nauðgunarmáli sem hefur verið mjög til umfjöllunar að undanförnu. „Já, Hann er enn skráður félagi í Tólfunni en vera hans í félaginu hefur reyndar verið til skoðunar nú í rúman mánuð.“Benni bongó með landsliðsfyrirliðanum, glaðir á góðri stundu. Tólfan reynir nú að vinna úr leiðindamálum, til að vera klár í slaginn, næsti vináttuleikur er á föstudag, við Pólland.Og, það er þá vegna þessa meinta fjármálamisferlis sem hefur verið til rannsóknar? „Já, það er rétt. En, nöfn þeirra sem tengjast þessu leiðindamáli, sem nú hefur verið til rannsóknar í rúman mánuð, þau verða ekki gefin upp að svo stöddu. Rannsóknin snýr að fjármálamisferli og kæra verður lögð fram á næstu dögum. Gagnaöflun vegna þess máls hefur staðið yfir nú í rúman mánuð,“ segir Benjamín. Aðspurður hvort þetta sé ekki mikið áfall fyrir þennan glaða félagsskap sem hefur sannarlega látið til sín taka og jafnvel verið nefndur sem 12. maður íslenska landsliðsins, segir Benjamín svo vissulega vera. „Já, þetta hefur verið mjög leiðinlegt og erfitt mál og óþægilegt í alla staði. Þar sem við viljum frekar tengjast því sem jákvætt er frekar en hinu neikvæða.“
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira